Boðar frekari niðurskurð Agnar Már Másson og Birgir Olgeirsson skrifa 25. júní 2026 18:32 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Vísir/Lýður Valberg Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðar frekari niðurskurð í borginni til viðbótar við hópuppsagnir sem greint var frá í dag. Hún segist ekki fara í uppsagnir af léttúð en sviðsstjórar borgarinnar eigi nú að fara yfir rekstur sinna sviða.
Aðgerðirnar ná til 27 starfsmanna á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Átján missa vinnuna og níu verða færð til í starfi. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir þetta þungar ákvarðanir en nauðsynlegar. Með þessum breytingum fækkar starfsfólki á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara um fjörutíu prósent. „Mér finnst eðlilegt sem borgarstjóri að ég byrji á að líta mér nær og á skrifstofuna sem ég er með í kringum mig. Þetta eru mjög erfiðar ákvarðanir sem við tökum ekki af neinni léttúð.“ Stefnumótunar- og þróunarteymi skrifstofunnar verður lagt niður. Þar með verður meðal annars hætt verkefnum á borð við rannsóknarþjónustu, verkefnastýringu lýðheilsumála og Græna planið. Viðburðateymi borgarinnar færist á menningar- og íþróttasvið og atvinnuþróun á umhverfis- og skipulagssvið. Þá verða allir upplýsingafulltrúar borgarinnar látnir fara. Í staðinn verður byggt upp minna miðlunarteymi með áherslu á stafrænar lausnir, markaðsmál og gagnadrifna upplýsingamiðlun. „Við ætlum að hafa aðra nálgun, ný hlutverk og einbeita okkur að gagnadrifinni upplýsingamiðlun, stafrænum samskiptamiðlum og markaðssetningu.“ Mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð verða lögð niður. Verkefnin hverfa þó ekki öll. Ofbeldisvarnir og málefni innflytjenda færast á velferðarsvið og hinsegin fræðsla til skóla- og frístundasviðs. „Við höfum auðvitað mannréttindi í heiðri eins og aðrir hér í samfélaginu, enda eru mannréttindi varin af stjórnarskránni okkar. Við erum að færa verkefnin nær þjónustunni og fólkinu sem þarf á þjónustunni að halda. Við teljum þetta tilkomubetra og náum líka hagræðingu með því.“ Uppsagnirnar hjá borginni bætast við 633 störf sem hafa tapast í hópuppsögnum á árinu. Í lok maí voru rúmlega níu þúsund manns á atvinnuleysisskrá. Hildur segir stöðuna í efnahagslífinu einmitt kalla á aðgerðir. „Tekjur okkar koma að mestu leyti af útsvari og við sjáum að tekjuvöxturinn mun ekki halda áfram með sama hætti. Þessar aðgerðir taka ekki til framlínuþjónustu. Við munum verja störf í framlínuþjónustu.“ Borgarstjóri segir fleiri hagræðingaraðgerðir fram undan og að sviðsstjórar borgarinnar eigi nú að fara yfir rekstur sinna sviða. „Við munum þurfa að taka margar stórar og erfiðar ákvarðanir í þessari borg. Það þarf kjark til að gera það og við höfum kjarkinn til þess.“
Reykjavík Vinnumarkaður Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira