Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Sindri Sverrisson skrifar 25. júní 2026 19:00 Alexia Putellas felldi tár þegar hún kvaddi Barcelona eftir óhemju farsælan tíma með félaginu. Getty/PAblo Rodriguez Spænska fótboltakonan Alexia Putellas, einn allra besti leikmaður sögunnar, hefur ákveðið að semja við enska félagið London City Lionesses.
Virtir miðlar á borð við BBC greina frá því að ákvörðun Putellas liggi nú fyrir en hennar nýja félag á eftir að tilkynna um komu hennar. Hún fer frítt til félagsins og er sögð fá afar há laun. BBC segir að nánast öll félög með fjárhagslegt bolmagn hafi reynt að fá þessa mögnuðu fótboltakonu. Miðillinn segir að Putellas hafi meðal annars einnig íhugað að ganga í raðir Boston Legacy í Bandaríkjunum en á endanum ákveðið að verða Ljónynja. Bandaríski auðkýfingurinn Michele Kang er eigandi London City Lionesses en hún á einnig Lyon í Frakklandi og Washingon Spirit í Bandaríkjunum. Hún er sögð staðráðin í að koma enska liðinu í Meistaradeild Evrópu og ljóst að koma Putellas mun hjálpa til við það. Liðið varð í sjötta sæti á sínu fyrsta tímabili í úrvalsdeildinni í vor. Putellas, sem hlaut Ballon d‘Or árin 2021 og 2022, tilkynnti í síðasta mánuði að hún myndi yfirgefa Barcelona. Þar hefur hún verið lykilmaður í besta liði Evrópu, spilað í 14 ár og unnið Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum. Putellas hefur auk þess orðið Spánarmeistari tíu sinnum og alls unnið 38 titla með Barcelona. Hún á markamet félagsins og hefur skorað 232 mörk í 507 leikjum. Aðeins Melanie Serrano á fleiri leiki að baki fyrir félagið og það munar bara níu leikjum á þeim.
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira