Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Freyja Þórisdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 25. júní 2026 23:45 Þessi nemendur voru sammála um að það væri erfitt að ýta sér áfram á hjólastólum. SÝN Vísindaskóli unga fólksins á Akureyri er hápunktur sumarsins hjá mörgum en hann er fyrir börn á aldrinum ellefu til þrettán ára. Ýmis námskeið eru á boðstólum og í ár fengu krakkarnir fræðslu um jafnréttismál, málefni norðurslóða, sorpmál og margt fleira.
Á einu námskeiðanna fræddu Sævar Helgi Bragason, af mörgum þekktur sem Stjörnu-Sævar, og Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, krakkana um náttúruvár á Íslandi og sjávarföll og kenndu þeim meira að segja að búa til sín eigin sólmyrkvagleraugu. „Þannig að þegar það kemur sólmyrkvi í myrkvi, þá er miklu öruggara að horfa á sólmyrkvann bara hérna í gegn svo það þurfi líka að fara beint í hann,“ sagði einn nemendanna og aðrir bættu þá við að þessi heimatilbúnu gleraugu kæmu vel í stað „alvöru“ sólmyrkvagleraugna. „Geðveikt“ fyrst en ekki gaman til lengdar Krakkarnir fengu einnig fræðslu um jafnrétti og settu sig svo í spor þeirra sem eru blindir eða nota hjólastól. Þrátt fyrir að það væri gaman í fyrstu að bruna um á hjólastól þá voru flestir krakkanna sammála um að það væri líklega ekki eins skemmtilegt ef maður hefði ekkert val. „Þetta er alveg geðveikt en ég er frekar viss um það, ef þú værir fastur í þeim þá væri það ekkert allt of gaman, þú veist á endanum,“ sagði einn þeirra og ítrekaði að „ef maður er búinn að vera í svona tuttugu ár eða eitthvað þrjátíu þá væri það ekkert sérstaklega gaman“. Á árinu var biðlisti þeirra sem vildu komast að langur og segir Sigrún Stefánsdóttir skólastjóri Vísindaskólans að sumir reyni að mæta öll þau ár sem þeir geti. „Meirihlutinn er strákar sem okkur finnst æðislegt því að það er alltaf verið að tala um að strákar séu ekki tilbúnir, að þeir séu ólæsir og þeir séu þetta og hitt. Þeir eru það alls ekki í þessum skóla,“ segir Sigrún.
Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Akureyri Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira