Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sigurgeir Þorkelsson skrifar 26. júní 2026 11:41 Ofurhjónin Þóra og Völli Snær á huggulegum veitingastað sínum í Þingeyjarsveit. Vísir „Ég fylgdi af því ég fæ gott að borða,“ segir Þóra Kolbrá Sigurðardóttir en eiginmaður hennar er listakokkurinn Völli Snær, fullu nafni Völundur Snær Völundarson. Þau hjónin hafa byggt upp ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra ásamt því að standa í fjölmörgum öðrum verkefnum. „
Ég held að alla sem hafi búið í sveit dreymi um að komast aftur til baka í þetta frelsi,“ segir Völli Snær. Þau hjónin fagna tuttugu ára brúðkaupsafmæli í vikunni og segjast alltaf vera jafn ástfangin. Eftir að hafa búið úti um allt, allt frá Húsavík til Bahamas, hafa þau nú komið sér kirfilega fyrir á Stóru-Laugum í Þingeyjarsveit, um miðja vegu milli Húsavíkur og Akureyrar. Stóru-Laugar í Þingeyjarsveit.Vísir Þau hjónin sitja sannarlega ekki auðum höndum í sveitasælunni heldur hafa komið upp sveitahóteli, Aurora Farm. Hótelrekstur var þegar til staðar á jörðinni en þau hjónin hafa gert upp hótelið og bætt við veitingastað ásamt heitum pottum og sánu. Það er erfitt að ímynda sér betri leið fyrir ferðafólk að enda daginn og hótelið allt er einstaklega huggulegt. Hótelið er hið glæsilegasta og býður meðal annars upp á þetta einkaspa fyrir hótelgesti. Vísir Loksins lent í sveitasælunni „Það er svo mikið af góðu fólki hérna, þetta er svo dásamlegt samfélag,“ segir Þóra. „Eiginlega kom það mér á óvart hvað það er skemmtilegt að vera hérna. Kyrrðin, maður andar hreinlega öðruvísi – takturinn er allt annar. Það er gott að vera hérna. Það er dauðaþögn, fyrir utan fuglasönginn.“ Gestir fá að njóta frábærs útsýnis úr herbergjunum. Þóra hóf fjölmiðlaferil sinn sem Birta í Stundinni okkar, hélt áfram störfum í fjölmiðlum og var síðast ritstjóri matarvefs mbl.is. Inn á milli hefur hún unnið við að ritstýra og skrifa bækur. Völli Snær er landsmönnum kunnur fyrir matreiðsluþætti sína sem sýndir hafa verið í 150 löndum. Þá hefur hann gefið út margverðlaunaðar matreiðslubækur og rekið veitingastaði um heim allan. Listakokkurinn Völli Snær, @chefvolundarson, gríðarstóran hóp fylgjenda á samfélagsmiðlum en meira en hundrað þúsund manns fylgja honum á miðlinum Instagram. Hér er Völli Snær á heimavelli. Í bakgrunni má sjá eldofninn fræga. Vísir Veitingastaðurinn Þorgrímur trekkir að Veitingastaður hótelsins er heimilislegur og tekur hámark fimmtíu manns í sæti. Allt er eldað í eldofni og hjónin uppljóstra að það hafi í raun verið eldofninn sem kom á undan öllu öðru. Þegar hann var keyptur hafði hann ekki verið notaður í heilt ár og tveggja tonna ofninn var fluttur norður í land án þess að athuga einu sinni hvort hann virkaði. Það er auðvelt að fá vatn í munninn þegar lýst er kræsingunum sem upp á er boðið. „Lambaskankar sem er búið að elda í tólf tíma, nautarif sem búið er að elda í fjórtán tíma, þorskur, bleikja – allt er eldað í ofninum,“ segir Völli. „Við höfum þetta eins einfalt og hægt er. Við erum bara með tvo rétti á dag, kjöt og fisk, og síðan eftirrétt.“ „Þetta er akkúrat það sem maður þarf eftir langan dag,“ bætir Þóra við. Kunna líklega ekki að láta sér leiðast Upptalningu á verkefnum hjónanna er ekki lokið hér en þau gefa út sitt eigið ekta, íslenska salt með svolitlu auka: umami. Umami-saltið eykur bragðdýptina samkvæmt þeim hjónum. „Íslenskt salt er á heimsmælikvarða, ég í rauninni fullyrði að íslenskt salt er besta salt í heimi. Matgæðingar vita þetta, þeir þekkja gæðin í íslenska saltinu. Við köllum þetta umami-salt því við erum að blanda þara saman við og þaðan kemur þetta umami-bragð: fimmta bragðtegundin,“ útskýrir Þóra. „Það sem þetta gerir er að dýpka bragðið. Hörðustu nördar með ofsalega vandað bragðskyn geta greint mun milli þess hvaða þara er verið að nota, ég get það nú ekki en ég hins vegar finn mun hvort sem ég er að nota umami-saltið eða hefðbundið salt.“
Ísland í dag Þingeyjarsveit Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira