Svekkjandi tap eftir sterka byrjun í steikjandi hita Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. júní 2026 17:03 Þriggja marka tap varð niðurstaðan gegn Austurríki. Ísland tapaði 3-0 gegn Austurríki í fyrsta leik sínum á Evrópumóti U19 kvennalandsliða. Stelpurnar okkar byrjuðu leikinn mun betur en urðu fyrir óvæntum áföllum í fyrri hálfleik og tókst ekki að minnka muninn þrátt fyrir frábær framtök í seinni hálfleik.
Sólin skein skært á stelpurnar okkar í Zenica í dag. Spilað var í steikjandi hita hér á þjóðarleikvangi Bosníu og Hersegóvínu, sögufrægum leikvangi þar sem einnig mátti finna ummerki eins sárasta taps í sögu Ítalíu í umspili HM í vor. Stelpurnar okkar í U19 landsliðinu.Judit Cartiel - UEFA Byrjuðu miklu betur Stressið sem fylgir yfirleitt fyrsta stórmótinu var þó hvergi sjáanlegt hjá þessu stórskemmtilega liði Íslands. Stemningin var öll þeirra megin í upphafi leiks og stelpurnar okkar byrjuðu af krafti. Þær spiluðu sig vel upp úr hápressu Austurríkis og þó færin hafi staðið aðeins á sér í upphafi leiks var hverri hornspyrnu Íslands, tæklingu og skoti í varnarmann fagnað sem marki. Ragnheiður Þórunn var mjög skapandi á miðjunni. Austurríki tók forystuna Þvert gegn gangi leiksins tók Austurríki forystuna skömmu eftir vatnspásu fyrri hálfleiks. Þá loksins virkaði hápressa Austurríkis og Ísland tapaði boltanum á eigin vallarhelmingi. Fyrirliðinn og miðvörðurinn Helga Rut Einarsdóttir gerði sitt allra besta til að stöðva sóknina, og komst mjög nálægt því, en boltinn hrökk af henni til Denise Lueger sem skoraði. Áföllin héldu áfram að dynja Ísland var áfram sterkari aðilinn en liðið varð fyrir öðru áfalli rétt fyrir hálfleik. Austurríki komst þar í sjaldgæfa sókn og græddi hornspyrnu, og upp úr henni kom önnur hornspyrnu. Þar náði Ronja Leidler skalla, sem var laflaus en flaug í háum boga yfir markmanninn Herdísi Höllu Guðbjartsdóttur og lenti í fjærhorninu. Austria v Iceland - UEFA Women's European Under-19 Championship 2026 Group B ZENICA, BOSNIA AND HERZEGOVINA - JUNE 28: Ronja Leidler of Austria celebrates scoring her team's second goal during the UEFA Women's European Under-19 Championship 2026 match between Austria and Iceland on June 28, 2026 in Zenica, Bosnia and Herzegovina. (Photo by Judit Cartiel - UEFA/UEFA via Getty Images) Ekki hjálpaði heldur til að rétt áður hafði liðsfélagi hennar hjá Breiðablik, Edith Kristín Kristjánsdóttir, neyðst af velli vegna meiðsla. „Hún fékk högg á hendina. Ég hef ekki heyrt alveg af því ennþá en ég held að það sé í lagi með hana. Hún meiddi sig samt klárlega mikið,“ sagði Halldór Jón Sigurðsson landsliðsþjálfari um meiðsli Edithar eftir leik. Ísland var því með meiddan leikmann og tveimur mörkum undir þegar flautað var til hálfleiks, þrátt fyrir að hafa spilað mun betur. Einstaklingsframtök í seinni hálfleik Ingibjörg Magnúsdóttir leysti Edith af hólmi á hægri kantinum og átti fyrsta alvöru færi seinni hálfleiks. Spretturinn upp völlinn hjá þessari sautján ára stelpu, sem kom nokkuð óvænt inn í lokahópinn fyrir EM U19 eftir að hafa tekið þátt í undankeppninni með U17, var stórkostlegur en kraft vantaði í skotið. Ingibjörg á sprettinum. Judit Cartiel - UEFA Berglind Hlynsdóttir lék afrekið eftir með frábærum spretti upp á eigin spýtur, en eftir að hafa sólað tvo varnarmenn tókst henni ekki að finna samherja með sendingu fyrir markið. Herdís Halla hélt Íslandi inni í leiknum Austurríki tók þá við sér og fékk stórhættuleg færi. Til allrar hamingju fyrir Ísland var Herdís Halla glaðvakandi í markinu. Hún varði vel í tvígang úr sömu sókn og þurfti svo aftur að hafa sig alla við skömmu síðar en tókst að bjarga marki í bæði skipti. Gáfu allt sem þær áttu „Höldum alltaf áfram, gefumst aldrei upp!“ mátti heyra landsliðsþjálfarann Halldór Jón Sigurðsson öskra á liðið þegar enn ein álitlega sóknin rann út í sandinn. Orkan virtist þá vera algjörlega á þrotum, þó um tíu mínútur væru enn eftir. Stelpurnar okkar kreistu allt sem þær áttu eftir úr sér á lokamínútunum en tókst ekki að skora markið sem þær þurftu. Þvert á móti þá náði Austurríki að setja sitt þriðja mark, þegar Ísland hafði fært nánast allt liðið fram völlinn. Tina Krassnig slapp ein í gegn og kláraði færið vel. Svekkjandi þriggja marka tap varð því niðurstaðan í fyrsta leik mótsins gegn Austurríki. Spánn og Sviss bíða átekta Næsti leikur Íslands er gegn Spáni á miðvikudag og svo gegn Sviss á laugardag. Spánn og Sviss gerðu 2-2 jafntefli fyrr í dag svo Austurríki vermir toppsæti riðilsins. Í hinum riðlinum eru Bosnía og Hersegóvína, Þýskaland, Svíþjóð og Pólland. Efstu tvö liðs hvers riðils munu mætast í undanúrslitum. Ísland var vel stutt á meðan leik stóð. Judit Cartiel - UEFA/
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Sjá meira