Erlent

Fimm sagðir látnir í skot­á­rás nærri Ham­borg

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Hamborg. Stade er um 35 kílómetra vestur af borginni.
Frá Hamborg. Stade er um 35 kílómetra vestur af borginni. Vísir/EPA

Byssumaður er sagður hafa skotið fimm manns til bana og sært fleiri við æskulýðsmiðstöð í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. Lögregla segir að tveir séu í haldi, þar á meðal sá sem er grunaður um að hafa skotið fólkið.

Lögreglan í Stade varaði fólk við því að vera á ferli nærri vettvangi skotárásarinnar í Dankers-stræti þar sem meiriháttar lögregluaðgerð væri í gangi. Síðar sagði hún að öll hætta væri liðin hjá.

Tveir eru sagðir í haldi lögreglu, þar á meðal grunaður byssumaður, að sögn þýska fjölmiðilsins DW.

Kort AP-fréttastofunnar sýnir með rauðu þar sem skotárásin fór fram í bænum Stade, vestur af Hamborg í Norður-Þýskalandi.AP

Stade er um fimmtíu þúsund manna bær vestur af Hamborg í Neðra-Saxlandi í norðanverðu Þýskalandi.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×