Lést af völdum alnæmis Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. júní 2026 21:10 Daveigh Chase lést fyrr í þessum mánuði 35 ára að aldri. Getty Daveigh Chase, leikkona og fyrrum barnastjarna, lést úr alnæmi að sögn réttarlæknis. Greint var frá því fyrr í mánuðinum að Chase væri látin þrjátíu og fimm ára að aldri.
Daveigh Chase lést fyrr í þessum mánuði og að sögn umboðsmanns hennar hafði hún látist af völdum blóðsýkingar í kjölfar heilahimnubólgu. Hins vegar hafi komið í ljós í nýrri skýrslu réttarlæknis í Los Angeles að Chase hefði látist af völdum alnæmis. BBC greinir frá þessu og hefur eftir réttarlækninum að hún hafi glímt við langvarandi lyfjaneyslu sem hafi einnig verið „marktækur þáttur“ í andláti hennar. Frægðarsól Chase skein skært á fyrsta áratug þessarar aldar. Hún ljáði hinni knáu Lilo rödd sína í teiknimyndinni Lilo&Stitch sem kom út árið 2002. Sama ár kom hún sér kirfilega fyrir í martröðum unglinga á öllum aldri með frammistöðu sinni sem Samara í The Ring. Chase náði í kjölfarið að fá fast hlutverk í HBO-þáttunum Big Love sem gengu í fimm seríur auk þess sem hún fékk minni hlutverk í seríum á borð við ER og Sabrina the Teenage Witch. Þegar komið er inn á síðasta áratug fór hlutverkunum þó að fækka og halla fór undan fæti. Chase komst æ oftar í fréttir fyrir óæskilega hegðun eða að hafa komist í kast við lögin. Daveigh Chase hafði síðustu ár dregið sig úr sviðsljósi Hollywood en faðir hennar sagði í samtali við New York Times að fyrir andlát hennar hafi hún verið heimilislaus.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Sahara Ray látin Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira