Erlent

Sjö­tti lést af sárum sínum á sjúkra­húsi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þrír eru í haldi lögreglu.
Þrír eru í haldi lögreglu. AP

Fjórar konur og tveir menn voru skotin til bana á heimili fyrir börn og mæður í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. 45 ára karlmaður er í haldi lögreglu grunaður um verknaðinn en hann átti í forræðisdeilu.

Hin látnu voru öll starfsmenn heimilisins samkvæmt umfjöllun BBC. Fimm þeirra voru skotin til bana á heimilinu en sjötta fórnarlambið lést úr sárum sínum á sjúkrahúsi. 

Dóttir mannsins, sem er þriggja mánaða, og 34 ára gömul móðir hennar sluppu án meiðsla en foreldrarnir áttu í forræðisdeilu samkvæmt færslu í hringrás lögreglunnar í Stade á Instagram.

Þrír eru í haldi lögreglu, þar á meðal meintur árásarmaður serm er þýskur ríkisborgari en upprunalega frá Tyrklandi. Móðirin er einnig í haldi lögreglu og 65 ára gömul kona sem er tengist foreldrunum nánum böndum. Dóttirin er í umsjá barnaverndar.

Karlmaðurinn var handtekinn í bíl eftir eftirför lögreglu og skotvopn hans gert upptækt. Eldri konan á að hafa ekið flótabílnum. 

Lögreglunni barst tilkynning um skothríð rétt eftir hádegi að staðartíma. Töluverður viðbúnaður lögreglu var á staðnum.

Í frétt DW er haft eftir talsmanni lögreglunnar sem segir árásina ekki hafa verið sérstaklega beinda að konum heldur sé um „langvarandi fjölskylduharmleik“ að ræða.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×