Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2026 09:30 Sébastien Desabre gerði flotta hluti með Kongómenn á HM en dagurinn í gær endaði ekki vel fyrir hann. Getty/Molly Darlington Í um átta mínútur svaraði landsliðsþjálfari Kongó, Sébastien Desabre, spurningum kurteislega áður en blaðamannafundurinn tók óvæntan og sorglegan endi. „
Því miður verðum við að tilkynna að faðir þjálfarans er látinn. Við vottum okkar samúð,“ sagði fjölmiðlafulltrúinn. Sébastien Desabre varð mjög alvarlegur á svip, horfði ákveðið á fjölmiðlafulltrúann, þakkaði fyrir sig, stóð upp og yfirgaf blaðamannafundinn. 🌍⚽️C’est comme que le Coach Sébastien Desabre a appris la disparition de son père ! #Mondial2026 #Desabre #RDC 🇨🇩 pic.twitter.com/P3ktvOajNo— Jenovic Mbowa (@jenovicmbowa1) July 1, 2026 Desabre var nýbúinn að hrósa leikmönnum sínum fyrir sögulega frammistöðu þeirra á mótinu og hafði svarað hefðbundnum spurningum frá fjölmiðlum þegar andrúmsloftið í herberginu varð skyndilega þungt og drungalegt. Það var fjölmiðlafulltrúi landsliðs Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó sem tilkynnti þessar hörmulegu fréttir en hann greip fram í fyrir blaðamannafundinum til að koma þeim á framfæri. Fjölmiðlafulltrúinn ávarpaði samankomna blaðamenn og sagði á frönsku: „Takk fyrir, en við tilkynnum að þjálfarinn hefur misst föður sinn. Innilegar samúðarkveðjur.“ Sýnilega skelkaður Desabre, sem var sýnilega skelkaður og horfði á fulltrúann í algjörri vantrú, þagnaði í nokkrar tilfinningaþrungnar sekúndur. Hann náði aðeins að hvísla lágt „Merci“ áður en hann stóð upp og gekk út úr herberginu um leið og blaðamannafundinum var slitið. Áður en þessar hörmulegu fréttir bundu snöggan endi á kvöldið hafði Desabre lýst yfir gríðarlegu stolti af liði sínu. Hann sagði að lið sitt hefði skilið eftir jákvæða ímynd af fótbolta sínum fyrir heiminn að sjá eftir að hafa veitt Englandi harða keppni á heimsmeistaramótinu á miðvikudag. Kongómenn leiddu í meira en klukkustund í 32-liða úrslitum áður en tvö mörk frá Harry Kane sneru leiknum við á síðustu 15 mínútunum, sem sendi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó heim en England áfram í viðureign gegn Mexíkó. „Þegar þú ert fulltrúi landsliðsins verður þú að skilja eftir góða ímynd og ég tel að okkur hafi tekist það,“ sagði Desabre, en lið hans skoraði eftir sjö mínútur og varðist vel áður en það var loks brotið á bak aftur á síðustu 15 mínútunum. Stolt en vonsvikin „Við erum stolt en vonsvikin. Við erum auðvitað vonsvikin yfir því að vera úr leik á heimsmeistaramótinu en við skoruðum fimm mörk á mótinu, spiluðum við lið sem eru mun ofar á styrkleikalistanum og náðum góðum úrslitum,“ sagði Desabre. Desabre kom á óvart með því að beita sóknarsinnaðri leikaðferð en spáð hafði verið, jafnvel af enska þjálfaranum Thomas Tuchel, með fjórum varnarmönnum í stað fimm. „Við vildum nýta breidd vallarins og þurftum pláss. Við vildum líka loka betur á miðjuna og loka leiðinni að (Elliott) Anderson, sem er mikilvægur í uppspili Englendinga,“ sagði Desabre. Þurfti besta framherja heims til að bjarga þeim „Okkur tókst að þjarma að Englandi en þeir brugðust við og það er það sem einkennir þessi stóru lið. Það þurfti besta framherja heims til að bjarga þeim og það er það sem gerist gegn þessum stóru þjóðum. Við gerðum það sem við gátum, við vorum nálægt því að vinna en þetta má líka líta á sem ákveðinn sigur fyrir okkur,“ sagði Desabre. Lýðstjórnarlýðveldið Kongó tók þátt í sínu öðru heimsmeistaramóti, 52 árum eftir fyrstu þátttöku sína árið 1974 þegar landið var þekkt sem Saír, og fékk á sig 13 mörk í þremur leikjum án þess að skora. Að þessu sinni enduðu þeir sem besta liðið í þriðja sæti eftir að hafa gert jafntefli við Portúgal og sigrað Úsbekistan í riðlakeppninni. Kongo Demokratik Cumhuriyeti Teknik Direktörü Sebastien Desabre, İngiltere maçının ardından yapılan basın toplantısında babasının vefat ettiğini öğreniyor...#beINWC26 #FIFAWorldCup pic.twitter.com/hCL0lN0ik6— beIN SPORTS Türkiye (@beINSPORTS_TR) July 2, 2026
HM 2026 í fótbolta Austur-Kongó Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Sigurbjörn í sérflokki og tveir þjálfarar toppa formann KSÍ á tekjulistanum Sport „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Fótbolti Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Fótbolti „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Íslenski boltinn Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Enski boltinn Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Fleiri fréttir Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Gagnrýnir FIFA fyrir brottrekstur Lamours: „Stjórnun sem byggir á ótta“ Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Enn á gjörgæslu eftir að hafa misst fótanna í sundlaug Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Sjá meira