Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Agnar Már Másson skrifar 4. júlí 2026 21:14 Píratar verða að finna Tortúga, höfuðstöðum sínum, nýtt heimili. Höfuðstöðvar þeirra hafa aftur verið til leigu. Samsett Mynd Píratar eru án heimahafnar þessa stundina, þar sem höfuðstöðvum þeirra við Hverfisgötu hefur verið lokað. Þeir leita nú að nýju húsnæði eftir að leigusali þeirra tilkynnti þeim að til stæði að selja eignina, sem hefur samt nú verið auglýst aftur til leigu. Formaður flokksins bindur vonir við að nýtt húsnæði finnist í lok sumars.
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, segir við Vísi að eigendur húsnæðisins að Hverfisgötu 39 hafi fyrir nokkrum mánuðum tjáð flokksstjórninni að þeir hygðust selja eignina og því hafi stjórnmálasamtökin þurft að víkja úr húsnæðinu eftir sveitarstjórnarkosningar í maí. „Við erum aðeins að taka sumarið og vonandi að detta inn í nýtt húsnæði í lok sumars og byrjun hausts,“ segir Oktavía í samtali við blaðamann. Hán tekur fram að ekkert sé fast í hendi enn sem komið er, en flokksstjórnin skoði nú nokkra kosti og taki líklega ákvörðun í ágúst. Nú er komið á daginn að húsnæðið er aftur auglýst til leigu, þó það hafi verið skilningur Pírata að eigendur væru að selja að sögn Oktavíu. Höfuðstöðvar Pírata hafa verið kallaðar Tortúga, í höfuðið á haítísku eyjunni sem var þekkt höfuðvígi sjóræningja á 17. öld. Oktavía tekur fram að höfuðstöðvarnar haldi áfram að heita Tortúga þó þau flytji sig um set. „Núna er Tortúga bara í netheimum þangað til eftir sumar,“ bætir hán við. Fyrstu höfuðstöðvar Pírata voru við Fiskislóð og síðan í Síðumúlanum áður en flokkurinn flutti sig á Hverfisgötu. Þetta er ekki eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur nýlega þurft að flytja sig um set en Sjálfstæðisflokkurinn seldi nýlega Valhöll, en þar höfðu höfuðstöðvar Sjálfstæðismanna verið um áratugaskeið. Þeir flytja nú í húsnæði Sjóvár.
Píratar Reykjavík Leigumarkaður Húsnæðismál Styrkir til stjórnmálasamtaka Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira