Skutu upp flugeldum til að trufla nætursvefn ensku leikmannanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2026 19:02 Lögregla í óeirðabúnaði hefur staðið vörð á götunum í kringum enska hótelið og vísað öllum frá sem reyna að komast nær. Getty/James Manning Mexíkóskir stuðningsmenn hafa tekið sig til og reynt að trufla nætursvefn ensku leikmannanna fyrir 16-liða úrslitin milli þjóðanna tveggja en leikurinn fer fram í nótt að íslenskum tíma.
Þetta kemur fram í nokkrum myndböndum á samfélagsmiðlum, meðal annars frá GB News. Þar má sjá aðdáendur skjóta upp flugeldum og spila háværa tónlist. Ben Leo hjá GB News hitti mexíkósku aðdáendurna sem ollu ónæði með flugeldum og hljómsveitartónlist fyrir utan hótel enska liðsins eins og sjá má hér fyrir neðan. Myndskeið sem birt var á samfélagsmiðlum virðist sýna hóp stuðningsmanna syngja, spila tónlist og skjóta upp flugeldum á götu nálægt hóteli enska liðsins. Fyrstu fregnir úr herbúðum enska liðsins benda til þess að þetta hafi haft lítil áhrif á leikmennina. 'They can't arrest them'Ben Leo confronts Mexico fans causing disturbances with fireworks and band music outside the England team's hotel. pic.twitter.com/mA536SbAi6— GB News (@GBNEWS) July 5, 2026 Lögregla í óeirðabúnaði hefur staðið vörð á götunum í kringum hótelið og vísað öllum frá sem reyna að komast nær. Aukin öryggisgæsla er til komin vegna þess að Ekvador, sem tapaði 2-0 fyrir Mexíkó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins, lagði fram kvörtun vegna hávaða til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, eftir að stuðningsmenn með hátalara, mótorhjól og lúðra rufu svefnfrið þeirra í síðustu viku. England hafði lengst af vonast til að halda dvalarstað sínum í Mexíkóborg leyndum fyrir leikinn aðfaranótt mánudags að íslenskum tíma, en það komst fljótt upp. Fyrr í vikunni var Ekvador mjög óánægt með að mexíkóskir stuðningsmenn notuðu hátalara, flautur og mótorhjól til að valda hávaða fyrir utan hótelið. Mexíkó vann þann leik 2-0. Þegar liðsrúta Englands kom að hótelinu fyrir 16-liða úrslitaleikinn stóðu nokkur hundruð mexíkóskir stuðningsmenn fyrir utan og púuðu á þá og hvöttu Mexíkó áfram. Mexican supporters did gather for a ‘serenade’ near the England team hotel overnight.It sounds romantic.Much more romantic than a load of people gathering outside the team hotel in the dead of night, and making a racket in an attempt to prevent Mexico’s next opponents from… pic.twitter.com/FDgDyKKOal— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) July 5, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira