Handbolti

Bjarki Már til franska stór­veldisins

Sindri Sverrisson skrifar
Bjarki Már Elísson spilar með frönsku meisturunum á næstu leiktíð.
Bjarki Már Elísson spilar með frönsku meisturunum á næstu leiktíð. Getty/Sina Schuldt

Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson er genginn í raðir franska stórliðsins PSG og hefur samið við félagið til eins árs.

Bjarki var laus og liðugur eftir að samningur hans við Veszprém rann út í sumar en hann hefur nú fundið sér nýtt félag og það eru sjálfir Frakklandsmeistarar PSG. 

Félagið leitaði til Bjarka vegna meiðsla franska landsliðshornamannsins Mathieu Grébille sem er með slitið krossband í hné.

Bjarki, sem er 36 ára, mun því leika í frönsku 1. deildinni á næstu leiktíð, sem og í Meistaradeild Evrópu líkt og hann gerði með Veszprém.

Bjarki lék með Selfossi og HK á Íslandi áður en hann hélt til Þýskalands árið 2013 og spilaði þar í landi með Eisenach, Füchse Berlín og Lemgo. Hann var svo hjá Veszprém í fjögur ár en kvaddi félagið í vor sem ungverskur meistari.

„Það er mér heiður og stolt að vera hér. Ég get ekki beðið eftir að byrja að spila í nýju litunum mínum. Ég heillaðist strax af verkefni félagsins þegar mér var sagt að þeir hefðu áhuga á mér. Paris Saint-Germain er frábært félag með ríka sögu og ég er mjög ánægður með að vera núna hluti af því,“ segir Bjarki á heimasíðu PSG.

„Líður eins og ég sé 26 ára“

„Ég hef átt langan og farsælan feril en mér líður samt eins og ég sé 26 ára, ekki 36. Það var draumur minn að spila handbolta sem atvinnumaður. Ég vona að ég sé enn langt frá endalokunum og að ég geti spilað í nokkur tímabil í viðbót,“ segir Bjarki sem bíður spenntur eftir að hefja leik með PSG og spila í Coubertin-höllinni.

„Heiðarlega sagt hefur mér alltaf líkað við merki og búning Paris Saint-Germain. Ég hef spilað á móti ykkur nokkrum sinnum síðan ég kom til Veszprém árið 2022 og það hafa alltaf verið frábærir bardagar.

Andrúmsloftið í hvert skipti sem ég hef spilað í Coubertin hefur alltaf verið einstakt. Það var erfitt að ná sigri hér. Stuðningsmennirnir eru háværir frá upphafi til enda og ég get ekki beðið eftir að spila fyrir framan þá,“ segir Bjarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×