Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Sindri Sverrisson skrifar 6. júlí 2026 10:34 Folarin Balogun fær að spila í kvöld þrátt fyrir rauða spjaldið í síðasta leik. Getty/James Squire Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sent frá sér afdráttarlausa yfirlýsingu vegna fordæmalausu ákvörðunarinnar um að framherji Bandaríkjanna, Folarin Balogun, verði ekki í banni í kvöld vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í síðasta leik á HM. „
Við lýsum yfir vantrú okkar á slíkri fordæmalausri, óskiljanlegri og óréttlætanlegri ákvörðun,“ segir í niðurlagi yfirlýsingarinnar frá UEFA í dag. Eins og fjallað var um í gær þá fær Balogun að spila gegn Belgíu í kvöld, í 16-liða úrslitum HM, en virtir miðlar á borð við Reuters, BBC og AFP segja FIFA hafa tekið þessa ákvörðun eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði samband við vin sinn Gianni Infantino, forseta FIFA. Leikbann Baloguns var gert skilorðsbundið til eins árs sem gerir honum kleift að spila í kvöld. Belgar voru fljótir að senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins og blöskrar ákvörðunin enda hefur það aðeins einu sinni áður gerst í sögu HM, þar sem 189 rauð spjöld hafa verið gefin, að leikmaður sleppur við leikbann. Það var þegar Brasilíumaðurinn Garrincha slapp við bann árið 1962, sem sömuleiðis var harðlega gagnrýnt, en á þeim tíma voru ekki reglur um sjálfkrafa leikbann vegna rauðs spjalds, líkt og í dag. UEFA segir ákvörðun FIFA ekki standast neina skoðun. Stundum sé hægt að túlka reglur með mismunandi hætti en ekki í þessu tilfelli. Rauðu spjaldi fylgi sjálfkrafa eins leiks bann og á því sé ekki hægt að gera undantekningar, hvað þá allt í einu á miðju heimsmeistaramóti. Með þessu sé búið að fara yfir strikið, grafa undan trúverðugleika HM og stefna heilindum íþróttarinnar í hættu. Yfirlýsing UEFA í heild sinni: Ákvörðun gærdagsins um að fresta framkvæmd sjálfkrafa eins leiks banns í eitt ár, í kjölfar rauða spjaldsins sem leikmaðurinn Folarin Balogun fékk, fór yfir strikið. Knattspyrna, líkt og aðrar íþróttir, byggir á reglum sem eru grundvöllur sanngjarnrar, heiðarlegrar og gagnsærrar keppni. Stundum eru reglur opnar fyrir túlkun. Í þessu tilfelli ekki. Sjálfkrafa lágmarksbann í einn leik í kjölfar rauðs spjalds er ekki valkvæður kostur og krefst ekki ákvörðunar þar til bærra aðila til að taka gildi. Það er meginregla sem er greypt í reglugerðir og getur ekki verið háð undantekningum, hvað þá í miðju móti þar sem nokkrir aðrir leikmenn hafa verið í sömu stöðu og tekið út bann sitt samkvæmt reglum. Þegar verndarar reglnanna tryggja ekki lengur öryggi þeirra er heilindum leiksins stefnt í hættu og trúverðugleiki keppninnar grafinn undan. Slík ákvörðun skapar jafnframt fordæmi í yfirstandandi móti, þar sem svipuð tilvik munu nú krefjast jafnrar meðferðar, keppninni til tjóns. Knattspyrna er ástsælasta íþrótt í heimi vegna þess að hún er fallegur leikur og nýtur trausts vegna þess að hún er spiluð alls staðar eftir sömu lögmálum. Mót er aldrei algjörlega sjálfstætt og ef um heimsmeistaramót er að ræða hefur það vald til að hafa jákvæðar eða neikvæðar afleiðingar fyrir leikinn í heild sinni. Við lýsum yfir vantrú okkar á slíkri fordæmalausri, óskiljanlegri og óréttlætanlegri ákvörðun.
HM 2026 í fótbolta FIFA UEFA Tengdar fréttir Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Gary Neville hefur gagnrýnt ákvörðun FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gerir bandaríska framherjanum Folarin Balogun kleift að spila næsta leik liðsins á HM, þrátt fyrir að hann hafi fengið rautt spjald í síðasta leik þess. 6. júlí 2026 08:01 Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum Bandaríski framherjinn Folarin Balogun má spila með gegn Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta en eins leiks banni hans vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu hefur verið frestað að því er heimildarmenn sem þekkja til málsins hafa tjáð The Athletic. 5. júlí 2026 17:46 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira
Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Gary Neville hefur gagnrýnt ákvörðun FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gerir bandaríska framherjanum Folarin Balogun kleift að spila næsta leik liðsins á HM, þrátt fyrir að hann hafi fengið rautt spjald í síðasta leik þess. 6. júlí 2026 08:01
Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum Bandaríski framherjinn Folarin Balogun má spila með gegn Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta en eins leiks banni hans vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu hefur verið frestað að því er heimildarmenn sem þekkja til málsins hafa tjáð The Athletic. 5. júlí 2026 17:46