Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sindri Sverrisson skrifar 6. júlí 2026 11:00 Sandro Tonali er orðinn leikmaður Tottenham. Tottenham Hotspur Tottenham hefur nú kynnt ítalska miðjumanninn Sandro Tonali til leiks sem sinn nýjasta leikmann. Félagið greiðir Newcastle metfé fyrir þennan 26 ára gamla leikmann.
Samkvæmt BBC var fyrsta tilboð Tottenham upp á 80 milljónir punda en nú hefur félagið samið um að greiða Newcastle 92,5 milljónir punda og svo 7,5 milljónir aukalega að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Upphæðin gæti því numið 100 milljónum punda eða 16,8 milljörðum króna. Tonali spilaði þrjú tímabil með Newcastle og skoraði fimm mörk fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni, eftir að hafa komið frá AC Milan. Hann var dæmdur í tíu mánaða bann af ítalska knattspyrnusambandinu, skömmu eftir komuna til Newcastle, vegna brota á veðmálareglum og spilaði því lítið fyrir liðið á fyrstu leiktíð sinni. Hann hefur hins vegar verið fastamaður í liðinu síðustu tvö tímabil og vann deildabikarinn með því í fyrra. Tottenham hefur einnig tryggt sér Mateus Fernandes sem kemur til félagsins frá West Ham fyrir 85 milljónir punda, og Jan Paul van Hecke sem kemur frá Brighton fyrir 52 milljónir punda. Þá eru varnarmennirnir Andy Robertson og Marcos Senesi komnir frítt til félagsins. Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, fagnar því að hafa landað Tonali sem hann segir einstakan leikmann: „Ég hef fylgst með honum um langa hríð því hann kom upp í gegnum unglingastarfið hjá Brescia, í mínum gamla heimabæ, og ég er afar ánægður með að fá að vinna með honum. Í ljósi hans hæfileika þá var mikill áhugi á Sandro í sumar. Hann var hins vegar ákveðinn í að vilja koma til Tottenham og ég veit að stuðningsmenn okkar munu dýrka það sem hann hefur fram að færa,“ sagði De Zerbi.
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira