Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. júlí 2026 15:48 Bryndís Guðjóns og Björgvin Franz sæt saman á Ítalíu. Leikarinn Björgvin Franz Gíslason hefur fundið ástina á ný í örmum Bryndísar Guðjónsdóttur, sópransöngkonu. Björgvin skildi við Berglindi Ólafsdóttur, eiginkonu sína til sextán ára, í fyrra.
Mannlíf greindi fyrst frá sambandstíðindunum en Björgvin birti myndir af parinu á Instagram-hringrás sinni í dag þar sem mátti sjá þau sóla sig á Ítalíu. Á fyrri myndinni mátti sjá parið brosa breitt niðri við strönd og við hana skrifaði hann „Gleðilega sól“ og vísaði í umfjöllun Vísis um Ítalíuflakk Íslendinga með myllumerkinu „#allirogammaþeirraáítalíu“. Á þeirri seinni voru þau greinilega á borgarflakki og skrifaði hann við hana: „Engar áhyggjur af okkur.“ Björgvin greindi frá því við Mannlíf að þau Bryndís hefðu hafið samband fyrir nokkru síðan án þess að fara nánar út í það en þau léku bæði í sýningum Borgarleikhússins á síðast leikvetri, hann í Galdrakarlinum í Oz og hún í La Bohéme. Sextán ára aldursmunur er á parinu, Bryndís er fædd 1993 en Björgvin árið 1977. Björgvin Franz Gíslason er einn ástsælasti leikari landsins og vakti fyrst athygli fyrir leik sinn sem Johnny Norway í Íslenska draumnum (2000) og sem Benedikt búálfur í Loftkastalanum árið 2002. Björgvin hefur leikið bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu síðustu tuttugu ár og fer með hlutverk Trölla í Þegar Trölli stal jólunum í Borgó í vetur. Bryndís er sópransöngkona með meistaragráðu í óperusöng frá Universität Mozarteum í Salzburg í Austurríki. Hún hefur komið fram í virtum óperuhúsum víða um Evrópu, hlotið alþjóðleg verðlaun og hlaut Grímuverðlaunin sem söngkona ársins árið 2025 fyrir söng sinn í Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu.
Ástin og lífið Borgarleikhúsið Ítalía Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Björgvin Franz kaupir 36 fermetra íbúð í miðbænum Leikarinn Björgvin Franz Gíslason hefur fest kaup á íbúð við Miðstræti í miðborg Reykjavíkur. Hann greiddi 49,9 milljónir króna fyrir eignina. 21. október 2025 10:20 Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Björgvin Franz Gíslason leikari er handleggsbrotinn en er á fullu í Ladda sýningunni í Borgarleikhúsinu og æfir af krafti í ræktinni með Evu Dögg systur sinni. Björgvin er ásamt öðrum leikurum og Ladda sjálfum í sýningunni Þetta er Laddi. 26. september 2025 15:01 Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira
Björgvin Franz kaupir 36 fermetra íbúð í miðbænum Leikarinn Björgvin Franz Gíslason hefur fest kaup á íbúð við Miðstræti í miðborg Reykjavíkur. Hann greiddi 49,9 milljónir króna fyrir eignina. 21. október 2025 10:20
Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Björgvin Franz Gíslason leikari er handleggsbrotinn en er á fullu í Ladda sýningunni í Borgarleikhúsinu og æfir af krafti í ræktinni með Evu Dögg systur sinni. Björgvin er ásamt öðrum leikurum og Ladda sjálfum í sýningunni Þetta er Laddi. 26. september 2025 15:01