Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre, Daníel Jakobsson og Vidar Aspehaug skrifa 9. júlí 2026 13:00 Frá því að fiskeldi í sjó hófst á ný upp úr 2010 hefur greinin tekið miklum framförum. Á síðasta ári nam útflutningur á eldislaxi hátt í 50.000 tonn. Til að setja það magn í samhengi nægir það til að útbúa um 200 milljónir máltíða. Á tiltölulega skömmum tíma hefur sjóeldi orðið ein af mikilvægustu atvinnugreinum þeirra byggðarlaga þar sem það er stundað. Skýr tengsl eru á milli uppbyggingar greinarinnar og fjölgunar íbúa á þessum svæðum. Í dag starfa hátt í tvö þúsund manns, beint og óbeint, í greininni. Starfsemin er að mestu leyti á Vestfjörðum og austanverðu landinu, en einnig á suðvesturhorni landsins. Greinin skiptir því verulegu máli fyrir íslenskt hagkerfi og ekki síður fyrir þau samfélög sem hafa byggt upp starfsemi í kringum hana. Hún hefur skapað atvinnutækifæri sem hafa styrkt byggðir og aukið fjölbreytni atvinnulífs og stendur nú fyrir um 6% af vöruútflutningi Íslands. Áhrifin ná jafnframt langt út fyrir eldisfyrirtækin sjálf. Fasteignaverð hefur hækkað hlutfallslega mest á þeim svæðum þar sem uppbygging sjóeldis hefur verið mest. Fyrirtækin kaupa jafnframt umfangsmikla þjónustu af innlendum fyrirtækjum, svo sem netagerðum, iðnaðarmönnum, umbúðaframleiðendum, flutningsaðilum og tæknifyrirtækjum. Þannig hafa orðið til fjölmörg störf í stoðgreinum sem annars hefðu líklega ekki orðið til. Greinin skilar því umtalsverðum skatttekjum og mikilvægum útflutningsverðmætum fyrir þjóðarbú sem byggir afkomu sína að stórum hluta á útflutningi. Þrátt fyrir þennan árangur eru blikur á lofti. Afkoma greinarinnar hefur verið óviðunandi undanfarin ár. Ástæðurnar eru margar en þar vegur umgjörð greinarinnar þungt. Sértæk skattlagning leggst á atvinnugrein sem er enn ung, stendur í miklum fjárfestingum og hefur ekki enn byggt upp sterka eiginfjárstöðu á grundvelli arðbærs rekstrar. Sértæk eldisgjöld á Íslandi eru hærri en í Færeyjum og Noregi, sem eru þau einu lönd sem leggja sambærileg gjöld á greinina. Á síðustu þremur árum hafa fjögur stærstu eldisfyrirtækin greitt um 22 milljarða króna í laun og um 6 milljarða króna í bein eldisgjöld. Auk þess skapar starfsemin verulegar skatttekjur í formi annarra skatta og gjalda, þannig að heildarskattspor greinarinnar er að minnsta kosti tvöfalt hærra. Á sama tíma hefur reksturinn í heild verið rekinn með tapi. Það er erfitt að byggja upp nýja atvinnugrein til framtíðar við slíkar aðstæður. Afleiðingar þessarar háu skattlagningar og skorts á löggjöf sem styrkir samkeppnishæfi Íslensks eldi á alþjóðamörkuðum eru þegar farnar að koma í ljós. Verulega hefur dregið úr fjárfestingum og stór verkefni á borð við uppbyggingu seiðaeldis, fullvinnslu og umbúðaframleiðslu hafa verið sett á bið. Um er að ræða tugmilljarða fjárfestingar sem hefðu getað skapað hundruð starfa á landsbyggðinni, aukið verðmætasköpun og stuðlað að enn sjálfbærari framleiðslu. Hægari uppbygging dregur jafnframt úr vexti útflutningsverðmæta. Það er því ástæða til að velta því fyrir sér hvort við séum að fórna verðmætum til lengri tíma fyrir tekjur til skemmri tíma. Tækifærin í íslensku sjóeldi eru hins vegar áfram mikil. Það er umtalsverður árangur að hafa byggt upp 50.000 tonna framleiðslu á rúmum áratug í nýrri atvinnugrein sem byggir á þekkingu sem Íslendingar hafa aflað sér í sjávarútvegi, fiskvinnslu, flutningum og sölu á alþjóðlegum mörkuðum. Sá árangur gefur tilefni til bjartsýni. Áform fyrirtækjanna um að tvöfalda framleiðsluna á næsta áratug eru metnaðarfull en jafnframt raunhæf ef rétt rekstrarskilyrði eru fyrir hendi. Slík uppbygging gæti hæglega skapað önnur eitt til tvö þúsund ný störf, aukið útflutningsverðmæti um tugi milljarða króna og haft jákvæð áhrif á fjölmargar stoðgreinar og tekjur hins opinbera. Stóra spurningin er því ekki hvort Ísland eigi að hafa öflugt fiskeldi. Hún er hvort við ætlum að skapa greininni rekstrarskilyrði sem gera henni kleift að halda áfram að fjárfesta, skapa störf og auka verðmætasköpun hér á landi. Til að það geti orðið að veruleika þarf rekstrarumhverfið að vera stöðugt og fyrirsjáanlegt. Þá gefst fyrirtækjunum svigrúm til að byggja upp sjálfbæran rekstur. Skattlagning þarf að taka mið af því að greinin er enn á uppbyggingarstigi. Það felur ekki í sér að greinin vilji ekki greiða skatta. Þvert á móti er sjálfsagt að fyrirtækin leggi sitt af mörkum til samfélagsins. En til þess þarf fyrst að skapast forsendur fyrir arðbærum rekstri. Jafnframt þarf löggjöfin að vera skýr, stöðug og fyrirsjáanleg. Fyrirtæki sem ráðast í fjárfestingar til margra áratuga þurfa að geta treyst því að leikreglurnar séu skýrar. Um leið er mikilvægt að gæta þess að séríslenskar kröfur grafi ekki undan samkeppnishæfni íslensks sjóeldis gagnvart helstu samkeppnislöndum okkar. Því voru það fyrirtækjunum sem stunda sjóeldi á laxi mikil vonbrigði að ekki skyldi takast að ljúka endurskoðun löggjafar um fiskeldi á nýloknu þingi. Heildarendurskoðun laganna hefur verið í vinnslu um árabil en enn hefur ekki tekist að ljúka málinu á Alþingi. Að þessu sinni virtist skorta samstöðu meðal stjórnarflokkanna um þær breytingar sem nauðsynlegt er að gera og lítil sem engin umræða átti sér stað um málið í þingsal. Við vonumst því til að ríkisstjórnin ljúki endurskoðun laganna sem fyrst. Það myndi skapa nauðsynlegan fyrirsjáanleika fyrir atvinnugrein sem hefur þegar sýnt að hún getur skapað verðmæti, atvinnu og tækifæri víða um land. Það væri samfélaginu öllu til hagsbóta. Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish, og Vidar Aspehaug, forstjóri Kaldvíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Sjókvíaeldi Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar