Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. júlí 2026 13:54 Kathy Griffin á leið inn í bíl með nýja kærastanum. Bandaríski grínistinn Kathy Griffin ku vera komin með nýjan 22 ára kærasta og því munar ekki nema 43 árum á parinu. Griffin hefur verið opin með ástarmál sín síðustu ár og sérstaklega áhuga sinn á yngri mönnum.
Kathy Griffin er 65 ára grínisti og leikkona sem vakti fyrst athygli fyrir uppistand sitt á tíunda árutgnum og er þekktust fyrir leik sinn í tveimur þáttum af Seinfeld og raunveruleikaþáttunum Kathy Griffin: My Life on the D-List (2005-10). Griffin hefur reglulega vakið athygli fyrir grófan og óheflaðan húmor sinn, þá sérstaklega þegar hún birti mynd af sér árið 2017 haldandi á blóðugri grímu sem líktist afhöfðuðu höfði Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Í gær vakti hún enn á ný athygli fólks þegar hún birti mynd af sér með yngri manni á Instagram. „Hann er 22 ára. Hafið þið það, internet,“ skrifaði hún við myndina af sér með ónefndum manninum. View this post on Instagram A post shared by Kathy Griffin (@kathygriffin) Stutt er síðan Griffin birti mynd af sér með öðrum manni um miðjan maí, sem var þó töluvert eldri en sá nýi, á Instagram og skrifaði: „Við erum Insta-opinber. Dílið við það.“ Hún hefur síðan eytt þeirri mynd sem bendir til að sá maí-rómans sé búinn. Griffin skildi við markaðssérfræðinginn Randy Bick í fyrra eftir tæplega fimm ára hjónaband. Sá var sextán árum yngri en Griffin og hefur hún síðan þá verið opinská um sambönd sín við yngri menn. Síðasti kærasti Griffin var nokkuð eldri en sá nýi. „Ég varð óvart ástfangin af 23 ára manni,“ skrifaði Griffin í grein fyrir netmiðilinn The Cut í lok síðasta árs. „Vegna aldursins bjó hann ekki yfir sömu karlrembu, kvenhatri og slagsíðum og karlar á mínum aldri. Hann virtist sjá mig. Ég veit að það hljómar mjög væmið. Ó guð, það hljómar svo asnalega! En mér leið mjög þægilega með honum og var sátt við að hanga með honum,“ skrifaði hún jafnframt. Á endandum reyndist aldursbilið of mikið. „Ég vissi að hann væri of ungur fyrir mig þegar hann sagðist aldrei vilja eignast börn og hann gæti verið með mér að eilífu. Þá sagði ég: Þú veist það ekki, þú ert 23 ára og hefur ekki hugmynd. Svo ég þurfti að sleppa þeirri dúfu lausri.“ Það er spurning hvernig fer með þann nýja.
Ástin og lífið Bandaríkin Hollywood Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira