Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Rakel Sveinsdóttir skrifar 13. júlí 2026 07:03 Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar, segist aðdáandi vel heppnaðra Out of Office svarpósta. Sem geta ýmist verið algjör snilld eða algjörlega glataðir. Vísir/Vilhelm Við erum að fara í gegnum Out of Office-tímann. Eða „þagnar-tímann“, því sumir láta ekki vita hvort þeir séu í fríi en ákveða frekar að svara seint og sjaldan.
Atvinnulífið leitaði til Herdísar Pálu Pálsdóttur, stjórnunarráðgjafa og eiganda Dokkunnar, um bestu ráðin fyrir Out of Office skilaboðin okkar. Enda segist Herdís aðdáandi vel heppnaðra Out of Office-skilaboða. „Ég fékk nýlega nokkur hundruð sjálfvirk svör þegar ég sendi tölvupóst á póstlista Dokkunnar og ég gat ekki annað en farið að skoða þau,“ segir Herdís Pála og hlær. „Þá fór maður að sjá ákveðin mynstur. Sumir voru með frábær skilaboð en önnur voru augljóslega löngu úrelt eða gáfu móttakandanum litlar sem engar upplýsingar.“ Herdís tók þó eftir einu. Bestu skilaboðin virtust eiga eitt sameiginlegt: Þau eru persónuleg án þess að missa fagmennskuna. Nokkur flott dæmi Herdís gefur okkur nokkur góð dæmi um Out of Office-skilaboð sem hún hefur tekið sérstaklega eftir og fundist skemmtileg. „Ég er í fríi og líklega annaðhvort að njóta lífsins eða leita að næsta kaffibolla.“ „Ég er í fríi en engar áhyggjur, ég kem alltaf aftur!“ - Og svo fylgdi með hvenær viðkomandi yrði næst við. „Jafnvægi skiptir öllu og þess vegna skrapp ég í frí til að næra líkama og sál.“ „Það er í góðu lagi að nýta Out of Office-svarpóstana til að fá okkur til að brosa. Stundum megum við alveg vera fyndin og skemmtileg og leyfa karaktereinkennunum svolítið að skína í gegn.“ En varla á húmor alltaf við; til dæmis sem svarpóstur frá útfararþjónustu? „Nei, auðvitað ekki,“ svarar Herdís og hlær. Þú verður alltaf að vera með texta í samræmi við vinnuumhverfið þitt og hvað er viðeigandi á hverjum stað. Margar aðrar leiðir eru líka mögulegar, þótt þú notir ekki húmor.“ Herdís bendir á aðra skemmtilega leið. „Þegar ég var að vinna hjá EFTA í Brussel átti það alls ekki við að senda Out of Office skilaboð sem væru fyndin. Ég valdi því að skrifa stuttan texta um að ég væri í fríi og hvert væri hægt að leita á meðan, og benti síðan sérstaklega á skýrslur sem voru nýkomnar út og gætu þótt áhugaverðar fyrir einhverja.“ Sama gerði hún í starfi sínu hjá Deloitte á sínum tíma á Íslandi. „Deloitte gerir ógrynni af flottum skýrslum fyrir vinnumarkaðinn og framtíðina. Mér finnst þessar skýrslur mjög áhugaverðar og tel auðvitað að svo eigi við um marga. Þess vegna lét ég alltaf link á eitthvað nýtt og áhugavert efni fylgja með í Out of Office svarpóstum á meðan ég starfaði þar.“ Það sem þú átt ekki að gera Herdís nefnir líka nokkur dæmi sem henni finnst alveg glatað að sjá. ,, Þegar fólk gleymir að afskrá Out of office þannig að viðskiptavinir fá Out of office svarpóst, þótt dagsetningin sé löngu liðin.“ Eða: „Ég er í fríi til 5. ágúst…. síðan kemur ekkert meir: Engar upplýsingar um hvern á að hafa samband við, hvert á að snúa sér eða hvernig er hægt að fá aðstoð.“ Enn eitt dæmið sem Herdís nefnir síðar í samtali er þegar fólk fær Out of office-svarpóst sem snýst einungis um sendandann og fólk upplifir ekki sem hluta af þjónustu. Dæmi: „Ég mun ekki lesa tölvupóst í fríinu.“ Síðastnefnda dæmið segir Herdís Pála að sé svo sem ekki rangt. Því það er gott að láta vita ef tölvupóstur er ekki lesinn í fríi og sumir vinnustaðir eru einfaldlega með þá reglu að starfsfólk lesi ekki tölvupósta í fríum eða utan vinnutíma. „Skilaboðin virka ekki sérlega þjónustumiðuð ef þetta eru einu upplýsingarnar sem koma fram,“ segir Herdís. En annað þessu tengt er líka að fylgja því eftir sem þú segir í svarpóstinum: „Oft fáum við skilaboð um að viðkomandi muni ekki svara tölvupóstum í fríinu. En fáum síðan svar tveimur klukkustundum síðar. Ef þú ert með Out of office svarpóst sem segir að þú sért í fríi og munir ekki lesa tölvupósta á meðan, skiptir máli að þú sért þá ekki alltaf að kíkja á tölvupóstana og jafnvel svara þeim í símanum.“ Vinnustaðirnir sjálfir Undanfarin ár hefur orðið algengara að fólk skrifi berum orðum að það muni hvorki lesa né svara tölvupósti á meðan sumarfrí stendur yfir. „Mér finnst bara jákvætt ef fólk veit við hverju má búast.“ Hún bendir á að víða erlendis sé þetta jafnvel stefna vinnustaða. „Ég fékk nýlega Out of Office-skilaboð frá opinberri stofnun þar sem kom fram að það væri einfaldlega stefna vinnustaðarins að starfsfólk læsi hvorki né svaraði tölvupósti í sumarfríi. Þá vita allir hvar þeir standa og það skapar ákveðið öryggi.“ Eru vinnustaðir ekkert að stjórna Out of office-svarpóstunum? „Jú, auðvitað er allur gangur á því,“ svarar Herdís. „Sumir vinnustaðir eru með ákveðnar reglur fyrir Out of Office, aðrir ekki en í alla staði snýst málið um að Out of Office er hluti af þeirri þjónustu sem þú ert að veita sem starfsmaður og þeirri upplifun sem þú vilt að móttakandinn hafi þegar svar berst frá þér.“ Að fylgja stöðluðum reglum á vinnustað segir Herdís líka ekki endilega þýða að þú megir ekki gera neitt annað. „Það getur vel verið að reglurnar séu þær að fram komi hvenær fríið þitt er og hvert eigi að leita. En það er ekki þar með sagt að það sé bannað að bæta einhverju við sem er skemmtilegt eins og: Ég er farin í sumarfrí og ætla að njóta þess að ferðast um landið, elta sólina og njóta tímans með mínum nánustu. Heyrumst síðar!“ Dæmi um vel heppnaðan Out of Office svarpóst sem Herdís segir að hafi virkað á sig sem: Það er sko vel þessi virði að bíða eftir þessum! Viðkomandi notaði húmorinn, miðlar þó upplýsingum og er hress, grípandi og jákvæður. Í dag ná vinnusamskipti langt út fyrir tölvupóstinn; Messenger og aðra samfélagsmiðla er auðvelt að nota og eins er hægt að senda SMS. Herdís segir þar erfiðara að setja skýr mörk. „Við höfum færri leiðir til að stjórna aðgengi að okkur á þessum miðlum. En við höfum alltaf stjórn á því hverju við svörum og hvenær.“ Að hennar mati þarf fólk líka að leyfa sér að vera í fríi. „Við eigum ekki að vera með samviskubit yfir því að taka okkur frí. En við getum samt hjálpað öðrum með skýrum upplýsingum um hverju megi búast við.“ Að lokum segir Herdís að Out of Office-skilaboð séu oft vanmetin. „Þetta eru kannski bara nokkrar línur sem fólk skrifar á leiðinni út í sumarfrí. En þær eru líka hluti af þeirri upplifun sem við skiljum eftir hjá öðrum,“ segir Herdís og bætir við: „Þess vegna finnst mér gott að segja ekki bara að ég sé í fríi. Það veitir upplýsingar, sýnir þjónustuhugsun og það má alveg láta móttakandann brosa aðeins líka.“ Fimm góð ráð Herdísar fyrir Out of Office Uppfærðu alltaf dagsetningar. Segðu hvenær þú verður aftur við. Láttu vita hvern megi hafa samband við í millitíðinni. Vertu skýr um hvort þú fylgist með tölvupósti. Leyfðu persónuleikanum að njóta sín – ef það passar við starf þitt.
Vinnustaðamenning Tengdar fréttir „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir þegar hún rifjar upp unglingsárin. 2. febrúar 2026 07:02 Trendin 2023: Hæfni en ekki starfsheiti eða prófgráður verður málið „Hæfniþættir verða miðjan í vinnunni, ekki starfsheiti eða prófgráður. Við munum gera spár um mannaflaþörf, ráðningar, skipulag fræðslu, starfsþróun og fleira út frá hæfniþáttum en ekki starfsheitum eða deildum,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir stjórnunarráðgjafi og annar stofnenda Opus Futura meðal annars um áherslur í mannauðsmálum árið 2023. 11. janúar 2023 07:00 40 ára plús: Myndir þú fá starfið þitt í dag ef það væri auglýst? „Eftir fertugt getur myndast ákveðin hætta á að fólk festist í ákveðnu fari eða fari að líða of vel í þægindahringnum, án þess að velta því fyrir sér hvort eitthvað þarfnist skoðunar, upp á framtíðar atvinnuhæfni“ segir Herdís Pála Pálsdóttir stjórnendaráðgjafi og margreyndur mannauðstjóri, til skýringar á því hvers vegna örnámskeiðið Ferillinn eftir fertugt miðast við fólk sem er fertugt eða eldri og vill skoða starfsferil sinn. 4. október 2022 07:00 Stóra uppsögnin: Fólk þarf að langa að vera í vinnunni Á Viðskiptaþinginu 2022 sem haldið er á Alþjóðlega mannauðsdeginum föstudaginn 20.maí næstkomandi, er sjónunum beint að mannauðsmálum. Enda telja ríflega 40% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum á Íslandi að skortur verði á vinnuafli á næstunni. 16. maí 2022 07:00 Giggstörfum fjölgar: Hafa frelsið til að velja sér lífstíl „Nú er svo komið að mestur vöxtur er í slíkum störfum og atvinnurekendur segjast oft ekki fá fólk í ákveðin störf nema tímabundið og þeir sem gigga velja sér lífsstíl út frá verkefnum sínum,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands um þá þróun að sífellt fleira fólk kýs að starfa sjálfstætt á verktakasamningum, frekar en að ráða sig sem launþega. Árelía segir helsta gallann við giggið felast í því að fólk upplifir oft, sérstaklega í byrjun, meiri óvissu um tekjur. ,,Hins vegar sagði einn giggari í rannsókninni að „það að vera launþegi er fullkomið óöryggi.“ 2. september 2021 07:01 Mest lesið Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Segðu Já í vinnunni og það strax! Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Uppsagnir fram undan og óttinn vex Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Sjá meira
„Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir þegar hún rifjar upp unglingsárin. 2. febrúar 2026 07:02
Trendin 2023: Hæfni en ekki starfsheiti eða prófgráður verður málið „Hæfniþættir verða miðjan í vinnunni, ekki starfsheiti eða prófgráður. Við munum gera spár um mannaflaþörf, ráðningar, skipulag fræðslu, starfsþróun og fleira út frá hæfniþáttum en ekki starfsheitum eða deildum,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir stjórnunarráðgjafi og annar stofnenda Opus Futura meðal annars um áherslur í mannauðsmálum árið 2023. 11. janúar 2023 07:00
40 ára plús: Myndir þú fá starfið þitt í dag ef það væri auglýst? „Eftir fertugt getur myndast ákveðin hætta á að fólk festist í ákveðnu fari eða fari að líða of vel í þægindahringnum, án þess að velta því fyrir sér hvort eitthvað þarfnist skoðunar, upp á framtíðar atvinnuhæfni“ segir Herdís Pála Pálsdóttir stjórnendaráðgjafi og margreyndur mannauðstjóri, til skýringar á því hvers vegna örnámskeiðið Ferillinn eftir fertugt miðast við fólk sem er fertugt eða eldri og vill skoða starfsferil sinn. 4. október 2022 07:00
Stóra uppsögnin: Fólk þarf að langa að vera í vinnunni Á Viðskiptaþinginu 2022 sem haldið er á Alþjóðlega mannauðsdeginum föstudaginn 20.maí næstkomandi, er sjónunum beint að mannauðsmálum. Enda telja ríflega 40% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum á Íslandi að skortur verði á vinnuafli á næstunni. 16. maí 2022 07:00
Giggstörfum fjölgar: Hafa frelsið til að velja sér lífstíl „Nú er svo komið að mestur vöxtur er í slíkum störfum og atvinnurekendur segjast oft ekki fá fólk í ákveðin störf nema tímabundið og þeir sem gigga velja sér lífsstíl út frá verkefnum sínum,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands um þá þróun að sífellt fleira fólk kýs að starfa sjálfstætt á verktakasamningum, frekar en að ráða sig sem launþega. Árelía segir helsta gallann við giggið felast í því að fólk upplifir oft, sérstaklega í byrjun, meiri óvissu um tekjur. ,,Hins vegar sagði einn giggari í rannsókninni að „það að vera launþegi er fullkomið óöryggi.“ 2. september 2021 07:01