Lífið

Adda og Al­freð eignuðust dreng

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Fjölskylda Arnhildar og Alfreðs er orðin vísitölufjölskylda eftir að það bættist drengur í hópinn.
Fjölskylda Arnhildar og Alfreðs er orðin vísitölufjölskylda eftir að það bættist drengur í hópinn.

Kraftlyftingakonan Arnhildur Anna Árnadóttir, yfirleitt kölluð Adda, og kærasti hennar, Alfreð Már Hjaltalín heilsunuddari, eignuðust dreng í vikunni og greindi Adda frá tíðindunum í gær.

„07.07.26. Litli bróðir er loksins kominn í heiminn! Heilar 18 merkur af fullkomnun og við elskum hann svo mikið,“ skrifaði Arnhildur í færslu á Instagram og birti þar myndir af nýfæddum drengnum.

Parið á fyrir þriggja ára dótturina, Úlfhildi Eddu.


Tengdar fréttir

Arnhildur og Alfreð selja íbúð með „nágranna úr gulli“

Arnhildur Anna Árnadóttir kraftlyftingakona og kærasti hennar, Alfreð Már Hjaltalín, fyrrverandi knattspyrnumaður og heilsunuddari, hafa sett fallega íbúð við Valshlíð í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 94, 9 milljónir.

Dóttir Arnhildar og Alfreðs komin með nafn

Dóttir Arnhildar Önnu Árnadóttur kraflyftingarkonu og Alfreðs Más Hjaltalín, heilsunuddara og fyrrverandi knattspyrnumanns, er komin með nafn. Stúlkan heitir Úlfhildur Edda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.