Körfubolti

Grind­víkingar halda sænsku landsliðskonunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ellen Nyström verður áfram með Grindavík.
Ellen Nyström verður áfram með Grindavík. Vísir/Vilhelm

Sænska landsliðskonan Ellen Nyström hefur framlengt samning sinn við Grindavík og verður áfram lykilleikmaður liðsins í Bónusdeild kvenna í körfubolta á komandi tímabili.

Grindvíkingar eru að setja saman öflugt lið því áður höfðu þær Abby Beeman og fyrrverandi WNBA-leikmaðurinn Farhiya Abdi einnig ákveðið að spila áfram með liðinu.

„Ellen kom með mikinn gæðastimpil til Grindavíkur og stóð svo sannarlega undir væntingum. Með reynslu af leik á hæsta stigi í Evrópu og sænska landsliðinu hefur hún reynst liðinu ómetanleg, bæði með fjölhæfni sinni, leiðtogahæfileikum og stöðugri frammistöðu á báðum endum vallarins,“ segir í frétt á miðlum Grindvíkinga.

Ellen Nyström var með 21,3 stig, 6,5 fráköst og 3,3 stoðsendingar að meðaltali í deildinni á síðustu leiktíð en hún hitti úr 88 prósent vítaskota sinna og setti niður tvo þrista í leik með 39 prósent nýtingu.

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hafði nokkrum dögum áður samið við nýsjálensku landsliðskonuna Tegan Graham en hún kemur til Grindavíkur með glæsilegan feril að baki. Hún lék síðast með Perth Lynx í áströlsku WNBL-deildinni, einni sterkustu kvennadeild heims. Þar áður átti hún frábært tímabil í Þýskalandi þar sem hún var valin bæði verðmætasti leikmaður deildarinnar og úrslitakeppninnar eftir að hafa leitt lið sitt til sigurs í 2. Bundesligunni.

„Hún er fjölhæfur framherji sem er þekktur fyrir frábæran körfuboltaheila, nákvæm þriggja stiga skot, óeigingjarnan leikstíl og framúrskarandi sendingagetu. Í gegnum feril sinn hefur hún jafnan gert samherja sína betri á sama tíma og hún hefur verið stöðug ógn í sóknarleiknum,“ segir í frétt á miðlum Grindvíkinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×