Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. júlí 2026 15:54 Margrét Friðriksdóttir í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Lýður Valberg Embætti ríkissaksóknara telur ekki ástæðu til að veita Margréti McArthur Friðriksdóttur leyfi til þess að áfrýja niðurstöðu héraðsdóms sem dæmdi hana til að greiða sekt vegna ummæla hennar um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara.
Margrét fjallar um málið í færslu á Facebook-síðunni sinni. Þar birtir hún bréf ríkissaksóknara þar sem tekið er undir röksemdir héraðsdóms. Telur embættið ekki efni til að veita áfrýjunarleyfi. „Var að komast að því að þessi kona Sigríður Friðjónsdóttir sem augljóslega veldur ekki sínu starfi og að virðist dansar með dómstólaspillingunni á Íslandi, telur að ég eigi ekki að fá að áfrýja ranglátum dómi sem stenst enga skoðun og ber með sér enn eitt merkið um samtryggingu og spillingu,“ skrifar Margrét í færslunni. „Þetta mál er að enda fyrir mannréttindardómstólnum svo mikið er víst og ég mun kæra íslenska ríkið fyrir ofsóknir í áratug sem hefur tekið mikinn toll af mér, minni fjölskyldu og fyrirtæki.“ Málið hófst eftir að Barbara sakfelldi Margréti árið 2023 fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdaroglu baráttukonu. Í kjölfarið birti Margrét færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún kallaði Barböru „lausláta mellu“ og hélt því fram að vitnisburðir í máli hennar hefðu verið falsaðir. Um hefði verið að ræða „plott“ til að fá hana sakfellda. Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi síðar Margréti fyrir ærumeiðingar í garð Barböru. Í byrjun júní var Margrét dæmd til að greiða tvö hundruð þúsund króna sekt eða sitja í fangelsi í fjórtán daga. Þess má geta að dómnum á hendur Margréti fyrir hótanirnar var áfrýjað til Landsréttar og þar var hún sýknuð. Fréttin hefur verið uppfærð til að leiðrétta að um er að ræða afstöðu ríkissaksóknara. Landsréttur hefur ekki enn tekið afstöðu til áfrýjunarleyfisins.
Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Dómsmál Tjáningarfrelsi Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira