Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Birgir Olgeirsson skrifar 13. júlí 2026 09:02 Ísland gæti orðið hálfrar milljónar þjóð árið 2037. Vísir/Vilhelm Ísland gæti orðið hálfrar milljónar þjóð strax árið 2037, samkvæmt hæsta spáafbrigði Hagstofunnar. Á sama tíma breytist samsetning mannfjöldans hratt. Innflytjendur og börn innflytjenda eru nú rúmlega fimmtungur landsmanna, fæðingarmynstur hefur breyst og til lengri tíma er gert ráð fyrir að þjóðin eldist.
Ísland gæti orðið hálfrar milljónar þjóð fyrr en margir halda, en á sama tíma breytist samsetning mannfjöldans hratt. Samkvæmt nýjustu mannfjöldaspá Hagstofunnar verða íbúar landsins rúmlega 550 þúsund árið 2075. Í hæsta spáafbrigði gæti mannfjöldinn náð hálfri milljón árið 2037. Fjölgunin skýrist ekki aðeins af fæðingum. Samsetning þjóðarinnar hefur breyst hratt á síðustu árum. Í byrjun þessa árs voru innflytjendur 77 þúsund, eða 19,6 prósent landsmanna. Ef börn innflytjenda eru talin með var hlutfallið 21,7 prósent og hefur aldrei verið hærra. Til samanburðar voru innflytjendur 7,4 prósent landsmanna árið 2012. Á sama tíma hafa breytingar orðið á fæðingarmynstri landsmanna. Frá árinu 2019 hafði fæðingartíðni verið hæst hjá konum á aldrinum 30 til 34 ára. Í fyrra snerist það við, þegar fæðingartíðnin var aftur hæst hjá konum á aldrinum 25 til 29 ára. Meðalaldur frumbyrja var þó enn hár í sögulegu samhengi, 29,2 ár. Hagstofan gerir engu að síður ráð fyrir að þjóðin eldist á næstu áratugum. Hlutfall fólks á vinnualdri lækkar samkvæmt spánni og eftir miðja öld verður elsti aldurshópurinn fjölmennari en sá yngsti. Þróunin er þó hægari hér en víða í Evrópu, meðal annars vegna þess að erlendir ríkisborgarar sem flytja til landsins eru að jafnaði ungir.
Mannfjöldi Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Sjá meira