McConnell birtir mynd af sér á spítala Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. júlí 2026 08:16 McConnell ásamt eiginkonu sinni Elaine Chao. Chao var vinnumálaráðherra í stjórnartíð George W. Bush og samgönguráðherra í fyrri ríkisstjórn Donald Trump. Instagram Öldungadeildarþingmaðurinn Mitch McConnell hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann greinir frá því að hann hafi dvalist á sjúkrahúsi og gengist undir ýmsar rannsóknir eftir fall og væga lungnabólgu.
McConnell hefur verið fjarri góðu gamni í nokkrar vikur og orðrómur kominn á kreik vestanhafs að hann væri við dauðans dyr eða jafnvel látinn. Samkvæmt McConnell var hann fluttur á sjúkrahús eftir að hann datt og missti meðvitund í skamma stund. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem McConnell dettur niður en hann hefur áður greint frá því að hafa þurft að fara í gegnum mikla endurhæfingu til að geta gengið, eftir að annar fótur hans lamaðist þegar hann fékk mænusótt sem barn. Repúblikanaflokkurinn hefur sætt nokkrum þrýstingi um að veita upplýsingar um heilsu McConnell eftir að hann var lagður inn 14. júní síðastliðinn. McConnell sækist ekki eftir endurkjöri og mun láta af störfum í janúar. Greint var frá því um helgina að annar öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, Lindsey Graham, hefði látist af völdum ósæðarflysjunar. Hann var 71 árs.
Bandaríkin Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Prestur lést þegar róðurkross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Sjá meira