Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér Díana Mjöll Sveinsdóttir og Sveinn Sigurbjarnarson skrifa 13. júlí 2026 16:32 Tanni Travel er fjölskyldufyrirtæki á Austurlandi. Fyrirtækið var stofnað árið 1993, en forsaga þess nær aftur til ársins 1969. Fyrirtækið er ferðaskrifstofa sem rekur hópbifreiðar og selur dags- og pakkaferðir á Austurlandi. Við erum önnur kynslóð til að reka fyrirtækið og höfum séð ferðaþjónustuna breytast úr litlum staðbundnum rekstri yfir í eina mikilvægustu atvinnugrein landsins. Saga okkar er ekki einstök. Víða um land eru sambærileg fjölskyldufyrirtæki sem hafa verið byggð upp yfir áratugi af fólki sem lagði mikla vinnu í reksturinn, oft með takmörkuðum ávinningi. Það er margt jákvætt að gerast. Aukin markaðssetning Íslands, uppbygging innviða og umræða um betra aðgengi að landsbyggðinni eru mikilvæg skref. En skattar og gjöld þurfa að vera í samræmi við þá stefnu. Þess vegna megum við ekki afgreiða umræðuna um skatta, gjöld og álögur sem hefðbundið kvörtunarefni greinarinnar. Fyrirtækin benda á hækkandi kostnað, stjórnvöld benda á þörf fyrir tekjur og almenningur upplifir kannski að ferðaþjónustan sé enn eina ferðina að kvarta. En umræðan ætti kannski líka að snúast um, hvort næsta kynslóð sjái framtíð í rekstrinum. Óstöðugt rekstrarumhverfi skapar óvissa framtíð Ferðaþjónustan þarf ekki sérmeðferð. Hún þarf stöðugleika, fyrirsjáanleika og skilning á því hvernig reksturinn virkar í raun. Gjaldtaka þarf að vera þannig útfærð að hún vinni ekki gegn þeirri uppbyggingu sem stjórnvöld segjast vilja styðja. Á síðustu misserum hafa álögur á ferðaþjónustu og tengdan rekstur aukist og oft með of stuttum fyrirvara til að fyrirtæki geti brugðist við og sett breytingarnar inn í verð sín. Gistináttaskattur hefur hækkað, nýtt innviðagjald hefur verið lagt á skemmtiferðaskip, kílómetragjald lögð á ökutæki og áformað er að leggja á nýtt náttúru- og innviðagjald. Ofan á þetta bætist óvissa um frekari breytingar á virðisaukaskatti í ferðaþjónustu, meðal annars boðaða hækkun á aðgang að baðlónum. Hver einstök breyting kann að virðast rökrétt hjá stjórnvöldum, en hjá fyrirtækjum safnast þetta saman og kemur niður á svigrúmi þeirra til uppbyggingar. Sonur okkar hefur starfað með okkur í fyrirtækinu undanfarin ár. Hann er áhugasamur, atorkumikill og hefur kynnst ferðaþjónustunni frá unga aldri. Þegar hann er spurður út í framtíðina segir hann: "Ég hef kynnst greininni vel í gegnum uppeldi mitt og finnst ferðaþjónusta vera mjög skemmtileg atvinnugrein. Hún er fjölbreytt, lifandi og krefjandi. Enginn dagur er eins og maður fær að hitta fólk alls staðar að úr heiminum, kynna Ísland og taka þátt í að skapa upplifanir sem fólk man eftir löngu eftir að heim er komið. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ferðaþjónusta verður alltaf sveiflukennd. Fjöldi ferðamanna breytist, gengi sveiflast, veður hefur áhrif og ytri aðstæður geta breyst hratt. Það er hluti af rekstrinum og áhættunni sem fylgir greininni. En skattar og gjöld eru annars eðlis. Þau eru ákvörðuð af stjórnvöldum. Þegar slík gjöld breytast með skömmum fyrirvara, eftir að verð hafa verið gefin út og samningar gerðir, lendir kostnaðurinn hjá fyrirtækinu sjálfu. Ég vona að ég geti einn daginn tekið við keflinu. En til þess þarf ekki aðeins ástríðu fyrir greininni heldur líka rekstrarumhverfi sem er í skattalegu jafnvægi." Stöðugt rekstrarumhverfi er forsenda áframhaldandi uppbyggingar Unga kynslóðin hefur fleiri valkosti en nokkru sinni fyrr. Hún getur unnið hvar sem er, sótt alþjóðleg tækifæri, byggt upp eigin rekstur á netinu eða leitað tækifæra utan heimabyggðarinnar. Það er jákvætt. En það þýðir líka að fjölskyldufyrirtæki á landsbyggðinni þurfa að vera raunhæfur og spennandi kostur, ekki aðeins arfleifð sem einhver tekur við af skyldurækni. Það sem þarf er ekki flókið, meiri fyrirsjáanleika þegar ný gjöld eru ákveðin og skýrari tengingu milli gjaldtöku og innviðauppbyggingar. Við þurfum rekstrarumhverfi þar sem fjölskyldufyrirtæki og frumkvöðlar geta vaxið og dafnað og að yngri kynslóðir sjái tækifæri í því að stofna eða taka við fyrirtæki í heimabyggð. Þannig dreifist verðmætasköpunin um landið og þekkingin helst í samfélögunum. Við viljum að næsta kynslóð sjái framtíð í ferðaþjónustu. Við viljum að hún taki við, þrói greinina áfram og byggi ofan á þá vinnu sem fjölskyldufyrirtæki um allt land hafa unnið í áratugi. En til þess þarf ferðaþjónustan að vera meira en falleg arfleifð. Díana Mjöll er framkvæmdastjóri Tanna Travel en Sveinn verkefnastjóri Tanna Travel. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar