„Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2026 06:30 Andoni Iraola á blaðamannafundinum sínum í gær þar sem hann talaði um stefnu sína og væntingar. Getty/Andrew Powell Andoni Iraola, nýr stjóri Liverpool, hélt í gær sinn fyrsta blaðamannafund eftir að hann settist í stólinn á Anfield. Hann ræddi um hvernig hann vill að liðið hans spili, ræddi þá miklu pressu sem verður á honum og að hann ætli að gera hlutina öðruvísi en forveri hans. „
Ég vil gefa þeim lið sem þau geta verið stolt af. Fótbolti, sérstaklega í Liverpool, snýst um að tengjast fólkinu,“ sagði Andoni Iraola, stjóri Liverpool. Verðum að vera lið sem leggur hart að sér „Ég hef verið hinum megin á Anfield, maður finnur fyrir leikvanginum. Ég myndi elska að upplifa þetta í hverjum leik sem við spilum. Það þarf að koma frá okkur á vellinum. Við verðum að vera lið sem leggur hart að sér, er ákaft og árásargjarnt. Þannig geta allir samsamað sig og fundið sig vel í því að styðja þetta lið,“ sagði Iraola. Hann segist gera sér vel grein fyrir því að þetta sé risastór klúbbur „Ég vil trúa því, ég skil það. Þangað til ég geng í gegnum ákveðna reynslu mun ég ekki vita það að fullu. Ég er hér til að upplifa þessar aðstæður, ég er tilbúinn í það. Ég skil að þetta er gríðarleg reynsla. Allt sem ég segi verður skoðað gaumgæfilega og maður verður að vera meðvitaður um mistök,“ sagði Iraola. Vill ekki vera of varkár „Ég myndi ekki vilja vera of varkár, ég ætla ekki að lifa í einhverri kúlu. Ég vil haga mér nokkuð eðlilega. Ég vil fara út í borgina og upplifa hana. Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool,“ sagði Iraola. “I would like to give them a team that they can feel proud of.” ✊💬 pic.twitter.com/Q7ZT6at9JI— Liverpool FC (@LFC) July 13, 2026 Iraola ætlar líka að gera hlutina öðruvísi „Ég ræddi við leikmenn, ég ræddi við starfsfólkið um það sem virkar vel, það sem við getum gert öðruvísi. Ég myndi ekki segja betur, ég myndi segja öðruvísi,“ sagði Iraola. Höfum tíma til að kynnast „Ég hef þann kost að leikmennirnir vita líklega nú þegar hvaða kröfur við munum gera varðandi leikstíl. En við munum hafa tíma til að kynnast. Það er eitt að þekkja leikmann en líka mikilvægt að spyrja hann í hvaða stöðum honum líður vel, hvar hann sér sjálfan sig – því ég er að spyrja þá þessara spurninga,“ sagði Iraola. „Eftir að ég sé það þá mun ég gera nokkrar prófanir á undirbúningstímabilinu, ég mun finna hlutina og taka ákvarðanir út frá því,“ sagði Iraola en hvað með kröfurnar á leikmann hans hjá Liverpool? Vill frekar takast á við djúpa varnarmúra „Þeir verða að vera meðvitaðir um grundvallarreglur okkar. Eftir það munum við hafa margar spurningar um hvernig á að takast á við djúpa varnarmúra. Ég vil frekar takast á við djúpa varnarmúra þar sem við munum líklega hafa stjórn á leikjunum, við munum fá á okkur færri færi og eyða miklum tíma á vallarhelmingi andstæðinganna,“ sagði Iraola. ❤️🙌 "I'm not gonna live in my bubble, just training ground, home. "I would also like to go to the city, experience the city. I know some places. I will have to take some pictures!"Andoni Iraola wants to experience all of Liverpool, not just the club. pic.twitter.com/IlTFA2z7Ob— This Is Anfield (@thisisanfield) July 13, 2026 „Sum lið gefa þér þessar aðstæður strax, það er í lagi. Önnur lið gefa þér ekki þessar aðstæður strax því þau munu reyna að stjórna leiknum, spila á þínum vallarhelmingi,“ sagði Iraola. „Ég hlakka til að eyða eins miklum tíma og mögulegt er á vallarhelmingi andstæðinganna – með boltann og án boltans – því mér finnst við vera nær því að skora úr þeirri stöðu,“ sagði Iraola.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Sjá meira