Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. júlí 2026 09:09 Gus er bæði ein stærsta og heillegasta grameðlubeinagrindin sem fundist hefur. Sotheby's/Matthew Sherman Grameðlubeinagrindin Gus seldist á uppboði hjá Sotheby's í New York í gær á 50 milljónir dala, jafnvirði 6,3 milljarða króna. Um er að ræða hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir risaeðlubeinagrind.
Kaupandinn hefur ekki gefið sig fram. Gus er nefndur eftir eiganda jarðarinnar þar sem hann fannst, í Suður-Dakóta árið 2021. Hann er ein heillegasta grameðlubeinagrindin sem fundist hefur og meðal þeirra stærstu. Það tók þrjú sumur að grafa beinagrindinu upp og þrjú ár að setja hana saman en rannsóknir leiddu í ljós bitför á höfuðkúpunni og gróin rifbeinsbrot. Talið er að Gus hafi fengið áverkana við veiðar eða í bardögum við aðrar risaeðlur. Sérfræðingar hafa lýst áhyggjum af því að risaeðluleifar á borð við Gus séu orðnar eftirsóttar meðal ofurefnaðra einstaklinga, sem hefur valdið því að verðið á þeim hefur farið hækkandi. Þetta hefur orðið til þess að söfn eiga varla möguleika á því að eignast beinagrindurnar, sem aftur veldur því að vísindamenn fara á mis við að geta rannsakað þær. Auðjöfrar hafa lánað söfnum beinagrindur í sinni eigu en það fyrirkomulag er einnig sagt bagalegt, meðal annars vegna þess að söfnin eru þá háð duttlungum eigendanna. Þá tryggir sú tilhögun ekki jafnt aðgengi vísindamanna að beinunum, sem hamlar vísindastarfi. Ekki síst vegna þess að rannsóknir þykja síður marktækar ef aðrir geta ekki endurtekið þær.
Fornminjar Risaeðlur Bandaríkin Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira