Eins og Tiger Woods myndi mæta á meistaramótið í Mosfellsbæ Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. júlí 2026 13:46 Nino Schurter er af mörgum talinn besti fjallahjólreiðamaður sögunnar. Dustin Satloff/Getty Images Nino Schurter, margfaldur heims- og Ólympíumeistari í fjallahjólreiðum, hefur boðað komu sína í malarhjólreiðakeppnina The Rift sem fer fram um helgina.
The Rift verður haldið í sjöunda sinn á Hvolsvelli helgina 17. - 18. júlí og metþátttaka er í ár. Í fyrsta sinn býður keppnin upp á fjórar leiðir, frá 60 km upp í 330 km, sem gerir fleiri hjólreiðamönnum kleift að upplifa hálendið og einstaka náttúru Íslands. Um þúsund keppendur eru skráðir til leiks en hverjum keppenda fylgir einn eða tveir aðstoðarmenn. Búist er því við um 2.500 manns á Hvolsvelli um helgina, að langstærstum hluta erlendis frá. Hjólað er frá Hvolsvelli, undir Heklurætur, upp Krakatind og Fjallabak, og endað aftur á Hvolsvelli. Mynd frá The Rift.The Rift Meðal þátttakenda í ár er Nino Schurter, margfaldur heimsmeistari og Ólympíumeistari í fjallahjólreiðum, sem er af mörgum talinn einn besti fjallahjólreiðamaður allra tíma. Dana Rún Hákonardóttir, ein af skipuleggjendum The Rift, greindi frá því í Bítinu á Bylgjunni að Schurter hefði sjálfur boðað komu sína. „Þetta var mjög tilviljanakennt. Ég fékk tölvupóst frá Nino Schurter og ég, sem kem ekki úr þessum keppnishjólreiðageira, spyr yfirmenn mína um hann. Benni, sem stofnaði Rift, fór alveg upp á afturfæturna og var bara: „Hvað ertu að segja?“. Þá er þetta auðvitað bara einn besti hjólreiðamaður allra tíma,“ sagði Dana Rún létt í bragði. Schurter hefur unnið til verðlauna í fjallahjólreiðum á Ólympíuleikunum.Alex Broadway/Getty Images „Þetta er bara eins og ef Tiger Woods myndi mæta á meistaramótið í Mosfellsbæ“ sagði Sigmar Vilhjálmsson þá. „Þetta er þannig. Þetta er alveg risastórt dæmi. Hann er semsagt fjallahjólreiðamaður en lagði þá skó á hilluna síðasta sumar. Nú ætlar hann að leika sér í malarhjólreiðum og byrjar hér á Íslandi,“ sagði Dana og hún telur þátttöku Schurter eiga eftir að gera The Rift að enn eftirsóttari viðburði.
Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Fleiri fréttir Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Sjá meira