Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. júlí 2026 06:41 Mohammad Bagher Ghalibaf, aðal samningamaður Írana, segir Írani nú í „tilvistarlegu“ stríði við Bandaríkin. Myndin er tekin við útför Ali Khamenei. Ghalibaf er annar frá hægri. Getty Bandaríkjamenn skutu eldflaugum á olíuflutningaskip sem hugðist leggja að bryggju á Kharg-eyju á Hormússundi. Bandaríkjastjórn hefur endurnýjað hafnarbann sitt gagnvart írönskum höfnum og að sögn embættismanna hafði skipið ítrekað verið varað við.
Bandaríkjaher gerði einnig árásir á varnar- og eldflaugainnviði Írana við ströndina í gærkvöldi, í kjölfar árásarrhinu sem beindist meðal annars gegn eldflaugageymslu. Þá bárust fregnir af árásum á skotmörk í höfuðborginni Tehran. Að venju svöruðu Íranir með árásum á skotmörk í Barein og Kúveit. Bandaríkjamenn segja árásir sínar miða að því að draga úr getu Írana til að gera árásir á skip á Hormússundi, sem Íranir „lokuðu“ aftur á laugardag. Þeir hafa margítrekað að þeir hyggist hafa umsjón með umferð á sundinu. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði sjálfur sagt að Bandaríkjamenn ætluðu að stýra umferðinni og rukka fyrir 20 prósent toll en dró þá yfirlýsingu nær samstundis til baka. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði enda sjálfur sagt skömmu áður að allar tilraunir til að hindra umferð á Hormússundi eða koma á gjaldskyldu fælu í sér brot á alþjóðalögum. Olíuverð hefur farið hækkandi síðan átök brutust út á ný og stendur í 85 dölum en það fór hæst í 120 dali áður en vopnahléð var undirritað sem nú er úr gildi.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Sjá meira