„Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Valur Páll Eiríksson skrifar 16. júlí 2026 12:01 Cristian Romero skaut til baka á Gary Neville. Samsett/Getty Cristian Romero, varnarmaður argentínska landsliðsins og Tottenham á Englandi, skaut föstum skotum á sjónvarpsmanninn og fyrrverandi fótboltamanninn Gary Neville eftir sigur Argentínu á Englandi í undanúrslitum á HM í gærkvöld.
Neville gerði kröfu um enskan sigur, líkt og fjölmargir aðrir enskir fótboltasérfræðingar. Þar má nefna Ian Wright, Joe Cole og fleiri til. Neville sagði það sökum þess að England hefði einfaldlega meiri gæði innanborðs en argentínska liðið. Tveir leikmenn sem spila á Englandi mynda miðvarðapar argentínska liðsins. Lisandro Martínez, miðvörður Manchester United, og Romero sem spilar fyrir Tottenham. Neville kallaði það „besta, versta miðvarðapar heims“ í aðdraganda leiksins. Þeir Martínez og Romero hafa verið misjafnir fyrir félagslið sín en gert vel með landsliðinu. „Það er eins og annar þeirra gefi mark í hverri einustu viku,“ sagði Neville. „En þú sérð þá með Argentínu og þá skora þeir mörk, skalla boltann frá og eru bókstaflega allsstaðar,“ sagði hann og bætti við: „Þess vegna kalla ég þá besta, versta miðvarðapar heims. Vegna þess að þeir geta verið algjörlega ótrúlegir á köflum, en á næsta augnabliki fara þeir úr því að vera frábærir í að vera fáránlegir.“ Komnir saman í úrslitin Þeir Romero og Martínez byrjuðu saman í úrslitaleik Suður-Ameríkukeppninnar árið 2024, þar sem Argentína fagnaði sigri gegn Kólumbíu. Þá hafa þeir spilað saman í hjarta varnarinnar í öllum leikjum liðsins á HM, að leik við Jórdaníu í riðlakeppninni undanskildum, en þá hafði Argentína þegar tryggt sig áfram. „Það eina sem ég vonast til þegar ég hætti er að ég verði ekki svona heimskur. Vonandi mun ég ekki tala svona illa um leikmenn, eða nokkurn mann,“ sagði Romero við argentínska miðla eftir leik í gærkvöld. „Við erum að reyna að gera okkar besta fyrir þjóð okkar. Stundum gengur það upp, stundum ekki, en við erum fyrst og fremst ánægðir að komast aftur í úrslitaleik á HM,“ segir Romero. Lisandro Martínez leikur fyrir Manchester United, fyrrum félag Nevilles.Joe Prior/Visionhaus via Getty Images Martínez, félagi hans í vörninni, bætti við: „Við erum vanir því að fólk tali um okkur í sífellu. Það virðist sem fólk hafi gaman af því, en við svörum á vellinum, ávallt með virðingu.“ Argentína hefur haldið hreinu í tveimur leikjum af sex þar sem parið hefur byrjað saman, gegn Alsír og Austurríki. En fengið á sig sex mörk gegn Grænhöfðaeyjum, Egyptalandi, Sviss og Englandi. Fastlega má búast við því að Romero og Martínez manni miðvarðastöðurnar er Argentína mætir Spáni í úrslitaleik HM klukkan 19:00 á sunnudagskvöldið kemur.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira