Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Sindri Sverrisson skrifar 16. júlí 2026 13:05 Sædís Rún Heiðarsdóttir er búin að skrifa undir samning til þriggja ára við Köln. FC Köln Ólafsvíkingurinn Sædís Rún Heiðarsdóttir gekk í dag til liðs við þýska knattspyrnufélagið Köln og verður þar með samherji Söndru Maríu Jessen, líkt og í íslenska landsliðinu.
Sædís kemur til Kölnar frá norska félaginu Vålerenga þar sem hún hefur spilað í tvö og hálft ár. Þessi 21 árs gamli, vinstri bakvörður fór til Vålerenga frá Stjörnunni eftir að hafa alist upp hjá Víkingi Ólafsvík. View this post on Instagram A post shared by 1. FC Köln Frauen (@fckoeln_frauen) Samningur Sædísar við Köln gildir til næstu þriggja ára, eða út júní 2029. Sædís átti frábæru gengi að fagna með Vålerenga og varð tvöfaldur meistari á fyrsta tímabili í atvinnumennsku. Hún lék einnig með liðinu í Meistaradeild Evrópu og mætti liðum á borð við Bayern München, Arsenal og Manchester United. „Við erum mjög ánægð með að Sædís Rún Heiðarsdóttir hafi valið 1. FC Köln þrátt fyrir önnur aðlaðandi tilboð. Hún er sterkur kantbakvörður með frábæran vinstri fót, býr yfir miklum gæðum í föstum leikatriðum og hefur framúrskarandi leikskilning. Með sína miklu möguleika til að þroskast, hugarfar og mikla vinnusemi passar hún einstaklega vel inn í okkar stefnu og mun styrkja liðið okkar til frambúðar á komandi árum,“ sagði Nicole Bender-Rummler, yfirmaður kvennafótboltans hjá Köln, á heimasíðu félagsins. „FC er metnaðarfullt félag. Eftir að hafa rætt við stjórnendur 1. FC Köln og landsliðsfélaga minn, Söndru Maríu Jessen, var enginn vafi í mínum huga að ég vildi ólm skipta yfir til FC. Ég vonast til að geta gefið nýja liðinu mínu mikla orku. Ég vil halda áfram að þroskast hér og ég get lofað því að ég mun alltaf gefa 100 prósent fyrir liðið, félagið og stuðningsmennina til að sjá mörg brosandi andlit,“ er haft eftir Sædísi sjálfri á heimasíðunni. Köln hafnaði í 7. sæti af 14 liðum í þýsku 1. deildinni á síðustu leiktíð og var Sandra María markahæst í liðinu með 12 mörk.
Þýski boltinn Norski boltinn Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Daníel með slitna hásin Handbolti Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Óliver vann opna breska í piltaflokki Golf Fleiri fréttir Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Þór Ak. - Keflavík | Geta sett nágranna sína á botninn FH - Breiðablik | Toppslagur í Kaplakrika Hlín opnaði markareikninginn hjá Malmö með tvennu Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Thelma Karen með mark í stórsigri Häcken Fastir í þriðja gír og bitlausir Fullkomin byrjun hjá Emelíu og Köge Ferran Torres gengur til liðs við PSG Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum „Þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir í“ Hringekja tapreksturs í fótboltanum „Ísland breytti lífi mínu“ Draumur að vinna með José Mourinho Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Neymar vill að þeir neikvæðu haldi sig heima Albert fljótur að skora í bikarsigri Fiorentina Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark „Þegar það rignir þá hellirignir“ „Komin mjög góð holning á liðið“ Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Nökkvi Þeyr með mark og stoðsendingu í hollensku deildinni Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Dramatík í lokin þegar Freyr vann norsku meistarana Júlíus skoraði þegar Elfsborg hoppaði upp í þriðja sætið Sjá meira