„Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2026 23:17 Lucas Digne sparkar í Lamine Yamal innan teigs og fékk dæmt á sig víti. Spánverjar komust í 1-0 og unnu undanúrslitaleikinn á endanum 2-0. Getty/Michael Regan Undanúrslitaleikurinn á þriðjudagskvöldið á milli Frakklands og Spánar var martröð fyrir franska varnarmanninn Lucas Digne.
Þessi 32 ára gamli bakvörður braut klaufalega á Lamine Yamal og Spánverjar komust yfir af vítapunktinum. Seinna í leiknum sofnaði hann á verðinum í vörninni þegar Spánverjar bættu við öðru marki. Nú, tveimur dögum síðar, hefur bakvörður Aston Villa rofið þögnina með færslu á Instagram. „Jæja, þá er draumurinn á enda. Draumur lítils drengs, og örugglega draumur þúsunda manna á bak við okkur. Maður ímyndar sér alltaf margt, oftast það allra besta. En endalok draums geta stundum verið erfið og það enn hrottalegra að vakna upp af honum,“ skrifaði Digne. „Það erfiðasta í dag er að finna orð til að lýsa þessum gríðarlegu vonbrigðum,“ bætir hann við. Vinstri bakvörðurinn nefnir ekki vítaspyrnuna beint, en kemur með sjálfsgagnrýna játningu: „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig. Einnig vonsvikinn fyrir hönd þessa liðs, fyrir alla vinnuna sem við lögðum á okkur og fyrir þennan hóp af ótrúlegum leikmönnum. Ég hugsa líka til allra þeirra sem ferðuðust til að styðja okkur, sem og þeirra sem studdu okkur frá Frakklandi og alls staðar að úr heiminum. Stuðningur ykkar bar okkur áfram í gegnum þetta ævintýri,“ skrifaði Digne. „Þrátt fyrir þessi gríðarlegu vonbrigði er ég samt stoltur af því að hafa verið fulltrúi landsins okkar, með allri sinni auðlegð, fjölbreytileika og öllu því fólki sem það samanstendur af,“ skrifaði Digne. Digne var ekki valinn í HM-hópinn þegar Frakkar urðu heimsmeistarar 2018 en hafði verið með á stórunum 2014 til 2016. Hann var heldur ekki valinn á HM 2022 eða á EM 2024. View this post on Instagram A post shared by Lucas Digne (@lucasdigne)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira