„Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Agnar Már Másson skrifar 16. júlí 2026 20:41 Vala Baldursdóttir er gusumeistari á Ægissíðu. Hún er formaður Gusumeistarafélags Íslands. Vísir/Sigurjón Formaður Gusumeistarafélags Íslands vonast til þess að yfirvöld komi til móts við gusumeistara, en þeir telja að reglugerð sem nær til baðstaða nái ekki nægilega vel utan um gususánur. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur gert athugasemdir við heilsuhætti á gusustöðum.
Gususánur hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár en það er tegund sánu þar sem gusumeistari stýrir hitanum með tilþrifum. En nú hafa heilbrigðisyfirvöld gert athugasemdir við starfsemi nokkurra gusustaða. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands lýsti áhyggjum af því í kvöldfréttum Sýnar í gær að færanlegar fargusur uppfylltu ekki kröfur sem gerðar væru í reglugerð um sund- og baðstaði. Þá væri oft væri skortur á almennri hreinlætisaðstöðu við fargufur. Vala Baldursdóttir er formaður Gusumeistarafélags Íslands og rekur sömuleiðis gusu í grásleppuskúr við Ægissíðu. „Gagnrýnin byggist á baðhúsareglu frá 2010 og við sem erum með gususánur höfum imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús.“ Gusu er haldið úti í húsvagni og grásleppuskúr við Ægissíðu.Vísir/Sigurjón Hún segir að gusur þjóni allt öðrum tilgangi en baðshús; þangað mæti enginn á eigin forsendum, heldur séu gestir alfarið undir handleiðslu gusumeistara. Vala vill meina að sömu kröfur séu ekki gerðar til sánustaða erlendis, svo sem í Finnlandi. Hún segir þó að sánan sín sé reglulega þrifin og hitastig í henni hækkað í yfir hundrað gráður til að drepa örverur. Sánugus hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár.Vísir/Sigurjón „Við erum með sjötíu til hundrað gráðu hita sem drepur flestar örverur og veirur. Við erum ekki með búningsaðstöðu eða sturtu en heilbrigðiseftirlitið er einhvern veginn að blanda því saman. Smithættu hér inni og því.“ Vala segir að þegar séu um þrjátíu gususánur um land allt. Hún segir að Gusumeistarar hafi kallað eftir nýrri reglugerð sem nái yfir gusur svo ekki þurfi að skilgreina þær sem sund- eða baðstaði. Hún vonast eftir því að kallinu verði svarað. „Þetta er ný atvinnugrein. Það þarf að koma eitthvað sem við getum tekið mið af.“ Vala Baldursdóttir gusumeistari.Vísir/Sigurjón
Gufuböð Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðismál Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira