Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Freyja Þórisdóttir skrifar 16. júlí 2026 19:10 Söngvarinn heitni gaf frá sér fjölda smella á borð við Space Oddity, Starman, Rebel Rebel og Heroes. Getty Tíu óútgefin lög sem tónlistarmaðurinn David Bowie samdi og tók upp snemma á ferli sínum verða gefin út í september þessa árs. Þegar þau voru tekin upp gekk hann undir listamannanafninu Davie Jones en breytti því skömmu seinna til að forðast að vera ruglað saman við söngavarann Davy Jones úr hljómsveitinni The Monkees.
Breska ríkisútvarpið (BBC) greindi frá því að útgáfufyrirtæki söngvarans hafi lýst „David Bowie: The Shel Talmy Recordings“ sem „heildstæðasta safni laga sem hinn ungi David Bowie tók upp“ með þáverandi upptökustjóra sínum, Shel Talmy. Í lögunum mun meðal annars heyrast í gítarleikaranum Jimmy Page, sem síðar stofnaði rokkhljómsveitina Led Zeppelin, og píanóleikaranum Nicky Hopkins, sem vann jafnframt með Bítlunum, The Who og The Rolling Stones. Önnur áður óútgefin lög sem koma út eru Cupid, Leave Her to Me, You Gotta Tell Her, Certain Woman, Today, I Live in Dreams og I Do Believe I Love You. Lagasafnið verður gert öllum aðgengilegt þann 18. september þessa árs er fram kemur í grein BBC. David Bowie var þekktur fyrir að synda á móti straumnum.Getty Upptökustjórinn Sheldon Talmy, sem lést árið 2024, er best þekktur fyrir smellina You Really Got Me með The Kinks og My Generation með The Who en hann og Bowie hittust fyrst þegar þeir voru tíðir gestir á Denmark Street í London, sem var miðstöð breska tónlistariðnaðarins á þeim tíma. Tróð upp hér á landi David Bowie lést í janúar árið 2016 eftir baráttu við krabbamein en hann var 69 ára að aldri þegar hann féll frá. Er hann talinn einn áhrifamesti tónlistarmaður allra tíma en ferill hans spannaði rúmlega 40 ár. Bowie skaust upp á stjörnuhimininn árið 1972 með plötu sinni The Rise and fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars.Bowie kom til Íslands árið 1996 og lék á Listahátíð í Reykjavík fyrir fullri Laugardalshöll. Meðal þekktustu laga kappans eru lögin Let‘s Dance sem kom út árið 1983 og er það jafnframt eina lag kappans sem náði á topp bandaríska vinsældalistans. Önnur lög eru Space Oddity, Heroes, Changes, Under Pressure, China Girl, Modern Love, Rebel Rebel, All the Young Dudes, Panic in Detroit, Fashion, Life on Mars og Suffragette Ciy. Bowie átti gaf hann út plötuna Blackstar einungis örfáum dögum fyrir andlát sitt en hann lét eftir sig tvö börn. Hér fyrir neðan má hlusta á lagið I Want Your Love en það var sett á streymisveitur í gær, miðvikudaginn 15. júlí.
Tónlist Bretland Menning Tengdar fréttir Þegar Bowie kom til landsins: „Allt við Ísland er draumi líkast“ Rokkarinn David Bowie fór fögrum orðum um Ísland þegar hann hélt tónleika hér á landi árið 1996. Hann fór einungis fram á svört handklæði og þrektæki. 11. janúar 2016 08:23 David Bowie heiðraður Sérstök sýning til heiðurs tónlistarmanninum og tískumógúlnum David Bowie var opnuð í Victoríu og Alberts safninu í London í vikunni. 22. mars 2013 10:30 Stjörnurnar minnast David Bowie Söngvarinn David Bowie er látinn eftir baráttu við krabbamein. Hann var 69 ára að aldri. Þetta staðfestir talsmaður hans í samtali við fjölmiðilinn The Hollywood Reporter. 11. janúar 2016 12:30 Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Fleiri fréttir Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Sjá meira
Þegar Bowie kom til landsins: „Allt við Ísland er draumi líkast“ Rokkarinn David Bowie fór fögrum orðum um Ísland þegar hann hélt tónleika hér á landi árið 1996. Hann fór einungis fram á svört handklæði og þrektæki. 11. janúar 2016 08:23
David Bowie heiðraður Sérstök sýning til heiðurs tónlistarmanninum og tískumógúlnum David Bowie var opnuð í Victoríu og Alberts safninu í London í vikunni. 22. mars 2013 10:30
Stjörnurnar minnast David Bowie Söngvarinn David Bowie er látinn eftir baráttu við krabbamein. Hann var 69 ára að aldri. Þetta staðfestir talsmaður hans í samtali við fjölmiðilinn The Hollywood Reporter. 11. janúar 2016 12:30