Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Sindri Sverrisson skrifar 17. júlí 2026 07:34 Slavko Vincic þekkir það vel að dæma stórleiki en leikurinn á sunnudag verður sá allra stærsti. Getty/Kevin C. Cox Fótboltadómarinn Slavko Vincic var gráti nær af hamingju og stolti þegar hann fékk að vita að hann yrði fyrsti Slóveninn til þess að dæma úrslitaleik á HM. Hann býr yfir mikilli reynslu og dæmdi meðal annars síðasta tapleik Argentínu á HM.
Á myndbandinu hér að neðan má sjá þegar Pierluigi Collina, yfirmaður dómaramála hjá FIFA, tilkynnti á fjölmennum dómarafundi að Vincic hefði orðið fyrir valinu til að dæma úrslitaleik Spánar og Argentínu á sunnudaginn. Vincic var nálægt því að bresta í grát enda draumur þessa 46 ára gamla dómara að rætast. Vincic þekkir það afar vel að dæma stórleiki og dæmdi til að mynda úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu fyrir tveimur árum, á milli Real Madrid og Dortmund, og úrslitaleik Evrópudeildarinnar árið 2022 á milli Frankfurt og Rangers. Leikurinn á MetLife-leikvanginum í New Jersey verður fjórði leikurinn sem Vincic dæmir á yfirstandandi HM. Áður hafði hann dæmt tvo leiki í riðlakeppninni á HM 2022. Lyfti loks rauðu spjaldi á stórmóti Vincic lyfti rauða spjaldinu í síðasta leik sem hann dæmdi, í sigri Mexíkó og Ekvador, og var það í fyrsta sinn sem hann rak mann af velli á stórmóti, í alls sex leikjum á HM og fimm á EM. Hann fór þá eftir nýju reglunni um að menn hylji ekki munninn til að leyna fúkyrðum í garð mótherja, og rak Piero Hincapié af velli fyrir að halda fyrir munninn og segja eitthvað við Santi Giménez, leikmann Mexíkó. Vincic var einnig dómari síðast þegar Argentína tapaði leik á HM en það var 2-1 tap heimsmeistaranna gegn Sádi-Arabíu á HM 2022. Hann er afar virtur en hefur einnig fengið sinn skerf af gagnrýni, til að mynda fyrir að gefa Eduardo Camavinga sitt seinna gula spjald og þar með rautt fyrir að tefja, í ævintýralegu einvígi Real Madrid og Bayern München í Meistaradeild Evrópu í vor. Sumir sérfræðingar töldu Vincic þar hafa farið einum of mikið eftir laganna bókstaf, í stað þess að leyfa Camavinga að sleppa. Úrslitaleikur Argentínu og Spánar er á sunnudagskvöld klukkan 19 að íslenskum tíma.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira