Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júlí 2026 09:00 Sigurður Ragnar Eyjólfsson heldur senn til Færeyja til að stýra NSÍ Runavík. Vísir/Sigurjón Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrði NSÍ Runavík frá Færeyjum áfram í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Hreint ótrúlegt mark réði úrslitum undir lok leiks, leikmenn hans voru grýttir og dómari leiksins þurfti að yfirgefa svæðið í lögreglufylgd.
Þrátt fyrir frábæran árangur hingað til á tímabilinu þar sem NSÍ situr á toppi færeysku deildarinnar leist ekki öllum á blikuna þegar Hamrun Spartans kom upp úr hattinum í Evrópu. Það efnað lið frá Möltu sem lék í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í fyrra. Staðan í einvíginu var jöfn þegar ótrúlegt atvik átti sér stað í lok leiks á Möltu í gær. Þeir maltnesku héldu að boltinn væri farinn út af og bjuggu sig undir að taka markspyrnu. Dómarinn hafði ekki gefið merki um slíkt, boltinn enn í leik og því hendi víti. Skorað var úr spyrnunni og NSÍ áfram. Allt varð vitlaust í kjölfarið. „Þetta er bara einn eftirminnilegasti leikur sem ég hef lent í. Það voru svo mikil læti og hasar í lokin að það var erfitt að fylgjast með öllu sem var í gangi. Menn voru að fá gul og rauð spjöld á sama tíma og við skoruðum mark sem var rosalega umdeilt,“ segir Sigurður Ragnar í Sportpakkanum á Sýn. „Áhorfendur gerðu allt vitlaust og köstuðu inn á flöskum, fánum og einhverju dóti. Svo var veist að dómaranum eftir leikinn þannig að lögreglan þurfti að koma og veita þeim vernd. Við máttum ekki fagna neitt eftir leik úti á velli, því þeir óttuðust að það yrðu óeirðir,“ „Þannig að við þurftum að bíða heillengi úti á velli áður en við fengum að fara inn í klefa og þá náttúrulega sprungum við úr fögnuði.“ Mikil þýðing fyrir bæinn og félagið NSÍ hafði fyrir leikinn í gær aldrei unnið tveggja leikja einvígi í Evrópu og raunar aðeins unnið fjóra leiki af 33, með markatöluna 21-84. Árangurinn er því sögulegur. „Já, auðvitað. Runavík, þar búa um þrjú þúsund manns, en þetta er klúbbur með mikinn metnað engu að síður. Það eru margir sjálfboðaliðar sem vinna fyrir klúbbinn og þeir komu um 10-15 sjálfboðaliðar með okkur út sem hafa verið að vinna mikið fyrir félagið í heilt ár. Þeir fá það umbunað svona svo við vorum með nokkra áhorfendur á leiknum,“ „Þetta hefur mikið að segja fyrir okkur og auðvitað lagar fjárhag félagsins mjög mikið að fá peninga frá UEFA. Svo náttúrulega er bara spennandi að vera að fara til slóveníu strxa í vikunni í næstu umferð,“ segir Sigurður. NSÍ mætir Koper frá Slóveníu í næstu umferð og mætir liðinu ytra í fyrri leik einvígisins á fimmtudaginn kemur.
Sambandsdeild Evrópu Færeyski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira