Búið spil fyrir Messi og félaga? Drake veðjaði á argentínskan sigur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júlí 2026 08:01 Drake hefur trú á argentínskum sigri í úrslitaleik HM í kvöld. getty/Simone Joyner Kanadíski tónlistarmaðurinn Drake hefur lagt háa fjárhæð undir að Argentína vinni úrslitaleik HM í kvöld. Það hefur venjulega ekki boðað gott fyrir íþróttamenn og -lið ef Drake veðjar á þau.
Drake lagði 1,5 milljón Bandaríkjadollara undir að Argentína myndi sigra Spán í úrslitaleik HM á MetLife-leikvanginum í New Jersey í kvöld. Liðum eða íþróttafólki sem Drake veðjar á hefur alla jafna ekki gengið vel og í því samhengi er oft talað um Drake-bölvunina. Rapparinn vinsæli lagði til dæmis eina milljón Bandaríkjadala undir á að Conor McGregor myndi sigra Max Holloway í endurkomubardaga sínum á dögunum. Það fór ekki svo en McGregor meiddist eftir 69 sekúndur. Drake veðjaði reyndar á argentínskan sigur gegn Frakklandi í úrslitaleik HM í fótbolta 2022. Hann tapaði hins vegar háum fjárhæðum þar sem úrslit leiksins réðust í vítaspyrnukeppni. Jafnvel þótt Spánn vinni í kvöld þarf Drake ekki að hafa áhyggjur af fjárhagnum enda einn vinsælasti tónlistarmaður heims og veit varla aura sinna tal. En ef Argentína vinnur í venjulegum leiktíma fær Drake um 5,2 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut. Lionel Messi og félagar kunna Drake þó eflaust litlar þakkir fyrir að veðja á sigur Argentínu í kvöld miðað við sögu hans í tengslum við íþróttaveðmál. Argentína varð heimsmeistari í Katar fyrir fjórum árum og getur endurtekið leikinn í kvöld. Ekkert lið hefur varið heimsmeistaratitilinn síðan Brasilía gerði það 1962.
HM 2026 í fótbolta Fjárhættuspil Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira