Hefur þjálfað hetjuna sína í fjórum landsliðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 17:15 Ferran Torres fagnar sigurmarki sínu í gærkvöldi. Getty/David Ramos/ Það var Barcelona-leikmaður sem tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn, bara kannski ekki sá Börsungur sem flestir bjuggust við. Ferran Torres kom inn á sem varamaður í úrslitaleiknum og skoraði sigurmark Spánverja í framlengingunni.
Alveg eins og þegar Spánn varð heimsmeistari í fyrsta skiptið var það leikmaður Barcelona sem skoraði sigurmarkið í framlengdum úrslitaleik. Þá var það Andrés Iniesta en nú Torres. Torres leysti af Mikel Oyarzabal, markahæsta leikmann Spánar á heimsmeistaramótinu, á 62. mínútu úrslitaleiksins en landsliðsþjálfarinn Luis de la Fuente vissi hvað hann hafði í Ferran Torres. „Ég kynntist Ferran þegar hann var sextán ára. Hann var með mér í U18, U20 og U21,“ sagði De la Fuente um Torres fyrir heimsmeistaramótið. Este gol es el de todo un país 🇪🇸 pic.twitter.com/yqFfG3nSYL— Ferran Torres (@FerranTorres20) July 20, 2026 „Ég þekki hann fullkomlega, ég veit hvaða hæfileika hann hefur til að spila í mismunandi stöðum. Auðvitað beinist athyglin oft að öðrum leikmönnum og spænsku leikmennirnir okkar eru ekki metnir að verðleikum. Hann er alltaf áreiðanlegur og stundum frábær,“ sagði De la Fuente. Þessi 26 ára leikmaður hefur einnig áunnið sér virðingu liðsfélaga sinna á undanförnum árum með óeigingjörnum leik sínum án bolta, svo ekki sé minnst á að hafa skorað átta mörk fyrir landsliðið síðan De la Fuente tók við. Þrenna gegn Þýskalandi og Manuel Neuer árið 2020 var eftirminnilegasta augnablik Torres í spænsku treyjunni þar til auðvitað í gærkvöldi. Hann hefur nú unnið bæði heims- og Evrópumeistaratitil með landsliðinu auk titla með yngri landsliðunum. "I don't know what's happening!" 🥹Ferran Torres couldn't believe that his goal helped Spain win the World Cup 🏆 pic.twitter.com/xlXWK1j0T6— Match of the Day (@BBCMOTD) July 20, 2026 Torres er uppalinn hjá Valencia en enska stórliðið Manchester City keypti hann í ágúst 2020. Eftir að hafa fallið úr náðinni hjá Pep Guardiola á tímabilinu 2021–22, aðallega vegna meiðsla, samþykkti Torres félagaskipti til Barcelona sem borgaði fyrir hann 55 milljónir evra í desember 2021. Hann hefur spilað með Barcelona síðan og á nýloknu tímabili var hann með 16 mörk í 33 deildarleikjum þegar hann fagnaði þriðja Spánarmeistaratitli sínum með félaginu.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira