Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2026 07:30 Kevin Keegan og Kenny Dalglish sjást hér á Anfield á minningarstund um fórnarlömb Hillsborough-harmleiksins. Getty/Liverpool FC/ Kenny Dalglish, maðurinn sem kom til Liverpool til að fylla í skarð Kevin Keegan og varð síðan einn stærsti leikmaður í sögu félagsins, sendi frá sér samúðarkveðju í gær eftir fráfall Keegan.
Kevin Keegan, sem var fyrrverandi fyrirliði og landsliðsþjálfari Englands, lést 75 ára að aldri, sjö vikum eftir að hann greindi frá því að hann hefði verið greindur með fjórða stigs krabbamein. „Það er mjög sorglegt að heyra um fráfall Kevin Keegan. Kevin var einn af bestu leikmönnum sinnar kynslóðar og bar hina frægu treyju númer sjö hjá Liverpool með miklum sóma. Afrek hans á vellinum voru einstök, en hann var líka dásamleg manneskja og sannkallaður heiðursmaður,“ skrifaði Kenny Dalglish. „Kostir Kevin enduðu ekki þegar hann hætti að spila. Hann varð framúrskarandi knattspyrnustjóri og það sem hann byggði upp hjá Newcastle United færði fótboltafélaginu aftur trú, spennu og stolt. Hann gaf svo mörgum dásamlegar minningar og liðin hans spiluðu leikinn á þann hátt sem stuðningsmenn elskuðu að horfa á,“ skrifaði Dalglish. „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum,“ skrifaði Dalglish. „Hugur minn er hjá Jean, Lauru, Söruh og allri fjölskyldu og vinum Kevins á þessum sorglegu tímum. Hvíl í friði, Kevin. YNWA,“ skrifaði Dalglish. Keegan sló í gegn hjá Liverpool þar sem hann spilaði frá 1971 til 1977, skoraði 100 mörk og varð þrisvar sinnum enskur meistari og einu sinni Evrópumeistari. Keegan var seldur til þýska félagsins Hamburger SV fyrir metfé sumarið 1977 og í staðinn keypti Liverpool Kenny Dalglish frá Celtic. View this post on Instagram A post shared by Liverpool Football Club (@liverpoolfc)
Enski boltinn Liverpool FC Newcastle United Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira