Körfubolti

Sigurinn á Bretum ýtti ís­lensku strákunum upp heimslista körfuboltans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason og félagar eru í hópi 44 bestu körfuboltalandsliða heims.
Tryggvi Snær Hlinason og félagar eru í hópi 44 bestu körfuboltalandsliða heims. Getty/Massimo Ceretti/

Sigur íslenska körfuboltalandsliðsins á Bretlandi tryggði liðinu ekki aðeins sæti í milliriðli undankeppni heimsmeistaramótsins heldur kom hann liðinu einnig upp um eitt sæti á heimslista körfuboltans.

.Ísland er í 44. sæti á nýjasta listanum, einu sæti fyrir ofan Portúgal og tveimur sætum fyrir ofan Bretland sem sat í næsta sæti fyrir ofan Ísland á síðasta lista.

Væntanlegir mótherjar íslenska liðsins í undankeppni HM eru Serbía, Tyrkland og Bosnía.

Serbar eru í þriðja sæti heimslistans, Tyrkland er í ellefta sæti og Bosníumenn eru í 33. sætinu. Það er því ljóst að þar eru á ferðinni frábær körfuboltalið sem munu heldur betur reyna að styrkja íslenska landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×