Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. júlí 2026 16:01 Pep Guardiola gæti tekið við landsliði Ítalíu. Carl Recine/Getty Images Ítalska knattspyrnusambandið er í leit að nýjum landsliðsþjálfara og virðist vera tilbúið að gera allt til að klófesta Pep Guardiola, sem hætti nýlega störfum hjá Manchester City.
Mikil umræða hefur átt sér stað um framtíð ítalska fótboltans eftir að landsliðinu mistókst að komast inn á HM í þriðja skiptið í röð og Gennaro Gattuso hætti. Þörf er talin á algjörri yfirhalningu og Guardiola er sagður rétti maðurinn til að leiða verkefnið. Erfitt hefur þó reynst að sannfæra Spánverjann, sem er sigursælasti þjálfari allra tíma, um að taka við starfinu. Guardiola hætti hjá Manchester City eftir áratug við stjórnvölinn og hefur ekki tekið ákvörðun um næstu skref. Um helgina flaug þriggja manna föruneyti frá ítalska knattspyrnusambandinu til Barcelona í samningaviðræður við Guardiola. Þeir Paolo Maldini, Giovanni Malagó og Leonardo lögðu öll spilin á borðið samkvæmt La Gazzetta dello Sport. Aðalástæða þess að Guardiola er tregur að taka við starfinu er talin sú að hann vilji verja meiri tíma með fjölskyldunni. Ítalska knattspyrnusambandið er sagt tilbúið að hjálpa honum við það, með því að auka enn frekar við teymi aðstoðarmanna og leikgreinenda sem gætu hjálpað Guardiola að sinna starfinu. Þá skapast reyndar það vandamál að Guardiola er gjörsamlega óður í fótbolta og gæti átt erfitt með að útdeila verkefnum eða treysta öðrum til að sinna sínu starfi, samkvæmt La Gazzetta dello Sport. Ekki nóg með það að Guardiola hafi verið boðið hrúgu af aðstoðarmönnum heldur var honum boðið að velja nýja þjálfara fyrir U21-landsliðið, einhvern sem vinnur eftir sömu hugmyndafræði og gæti mögulega tekið við A-landsliðinu af Guardiola í framtíðinni. Auk þess er ítalska knattspyrnusambandið tilbúið að gera „sérstakar ráðstafanir“ til að mæta launakröfum Guardiola, að sögn forseta sambandsins Giovanni Malagó.
Ítalski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira