Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Kristján Már Unnarsson skrifar 22. júlí 2026 22:12 Baldvin Lár Benediktsson við fyrrum hús Klausturbleikju sem núna er að verða brugghús. Egill Aðalsteinsson Í byggingu sem áður hýsti vinnslustöð Klausturbleikju er núna verið að innrétta brugghús. Oddviti Skaftárhrepps segist treysta því að bjórinn verði jafngóður og bleikjan var.
Í kvöldfréttum Sýnar var Kirkjubæjarklaustur heimsótt en fyrir þremur vikum sögðum við frá því að starfsemi Klausturbleikju væri hætt í vinnsluhúsinu undir Systrafossi. En núna er að koma þar ný starfsemi. Þar sem áður voru fiskvinnsluvélar eru komnar brugggræjur. Bruggtækin eru komin inn í húsið.Egill Aðalsteinsson Baldvin Lár Benediktsson, einn stofnenda Lár brugghúss, var spurður hvort pláss væri fyrir fleiri brugghús á Íslandi: „Já, það er ekkert brugghús hérna. Þannig að það er gott að efla bara bruggsamfélagið á Íslandi,“ svarar Baldvin Lár. „Ferðamenn hafa mjög gaman af því að koma og þetta er algeng spurning, bara: „Hvar er heimabruggið, hvar er „local“ bjórinn?“,“ segir hann hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Þetta verður jafnframt ölkrá og grillstaður en Baldvin segir stefnt að því að brugga nokkrar tegundir af bjór. -Hvert ætlið þið að selja bjórinn? Er það inn á veitingastaði í héraðinu eða annað? „Já, inn á veitingastaði og hótel. Og svo náttúrulega bara hjá okkur á barnum. Það er svona aðalmarkmiðið,“ segir hann. Að framtakinu standa Skaftfellingar með djúpar rætur á Klaustri. „Við erum fjögur sem stöndum að þessu og erum að opna þetta saman. Við rekum nú þegar Kjarr restaurant hérna saman.“ Vinnslusal bleikjunnar var breytt í veitingasal.Egill Aðalsteinsson Veitingahúsið Kjarr er í gamla hótelinu sem langafi hans, héraðshöfðinginn Siggeir Lárusson, byggði upphaflega ásamt bróður sínum. Baldvin segist þó sakna Klausturbleikjunnar. „Það hefði verið gott að hafa hana áfram. Það var dálítið auðveldara fyrir okkur að geta bara skokkað yfir planið og sótt bleikju fyrir veitingastaðinn hjá okkur.“ Baldvin segir veitingahúsið hafa verið opnað um síðastliðna helgi. Fyrsti bjórinn úr Lár-brugghúsi sé hins vegar enn að gerjast en hann verði væntanlega kominn í sölu í ágústmánuði. Sveinn Hreiðar Jensson er oddviti Skaftárhrepps.Egill Aðalsteinsson En hvað finnst oddvitanum Sveini Hreiðari Jenssyni um að fá ölgerð og krá í húsið? „Það er bara jákvætt. Og jákvætt fyrir ferðaþjónustuna að við fáum hérna nýjan vinkil í ferðageirann og afþreyingu hérna á Klaustri og í Skaftárhreppi.“ -En eru það góð skipti; bjór fyrir bleikju? „Ja.., það fer eftir því hvern þú spyrð. En ég treysti bara á að bjórinn verði góður, - jafngóður og bleikjan var,“ svarar Sveinn Hreiðar oddviti. Svo vill til að bleikjuvinnsla Lindarfisks í Vík í Mýrdal hlaut sömu örlög; að breytast í öldurhús, eins og fjallað var um í þessari frétt fyrir þremur vikum:
Skaftárhreppur Áfengi Veitingastaðir Ferðaþjónusta Bleikja Fiskeldi Landeldi Matvælaframleiðsla Tengdar fréttir Klausturbleikjan fæst ekki lengur Ein þekktasta bleikjueldisstöð landsins, Klausturbleikja á Kirkjubæjarklaustri, hefur hætt starfsemi. Oddviti Skaftárhrepps segir þetta áfall fyrir lítið sveitarfélag og telur að strangt og dýrt eftirlit hafi átt þátt í því hvernig fór. 1. júlí 2026 21:41 Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Endalok Klausturbleikju gætu þýtt fall annarrar eldisstöðvar í Skaftárhreppi, Lindarfisks í Meðallandi. Eigendur þeirrar stöðvar lokuðu bleikjuvinnslustöð sinni í Vík í Mýrdal, í trausti samstarfs við Klausturbleikju, en hafa núna í staðinn opnað barinn Syndabælið í vinnsluhúsinu. 2. júlí 2026 23:09 Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Innlent Fleiri fréttir Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Sjá meira
Klausturbleikjan fæst ekki lengur Ein þekktasta bleikjueldisstöð landsins, Klausturbleikja á Kirkjubæjarklaustri, hefur hætt starfsemi. Oddviti Skaftárhrepps segir þetta áfall fyrir lítið sveitarfélag og telur að strangt og dýrt eftirlit hafi átt þátt í því hvernig fór. 1. júlí 2026 21:41
Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Endalok Klausturbleikju gætu þýtt fall annarrar eldisstöðvar í Skaftárhreppi, Lindarfisks í Meðallandi. Eigendur þeirrar stöðvar lokuðu bleikjuvinnslustöð sinni í Vík í Mýrdal, í trausti samstarfs við Klausturbleikju, en hafa núna í staðinn opnað barinn Syndabælið í vinnsluhúsinu. 2. júlí 2026 23:09