„Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. júlí 2026 23:47 Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm Tjaldsvæði á Austurlandi eru mörg hver stappfull af sólarþyrstum Íslendingum í sumarfríi en veðrið á suðvesturhorninu hefur leikið íbúa höfuðborgarinnar grátt síðustu daga. Aðsóknin sé álag bæði á starfsfólk og innviði en vinna hafi verið lögð í uppbyggingu tjaldsvæða á Austfjörðum síðustu ár. „
Þetta eru orðnir tíu eða tólf dagar af geggjuðu veðri, bara sól og vel yfir 20 stiga hiti,“ segir Halla Eyþórsdóttir en hún rekur sex tjaldsvæði á Austfjörðum ásamt bróður sínum. Hún segir mikinn mannfjölda, aðallega Íslendinga, vera á tjaldsvæðinu í Fossárdal í Berufirði, einu af tjaldsvæðunum sem hún rekur. „Mjög mikið af fólki búið að vera í marga, marga, marga daga.“ „Þannig á meðan að fjallið skilar okkur vatni þá erum við góð“ Vatn hefur verið af skornum skammti á svæðinu enda mikið af fólki og lítið sem ekkert rignt. „Það er að lækka aðeins í toppunum vegna þess að þar er svo þurrt. Það vantar í lindirnar okkar vatn. Það hefur ekki rignt hérna bara ofboðslega lengi, engin almennileg rigning en þetta sleppur alveg, við settum bara skilti og báðum fólk aðeins að passa sig.“ Íslendingar séu nú ekki endilega vanir því að þurfa að fara sparlega með vatn. „Fólk er bara að vaska upp og lætur bara renna og það eru hérna þrír skolunarvaskar og rennur kannski í þeim öllum samtímis og svo kemur maður og fer að þvo hjólhýsi sitt.“ Gestir tjaldsvæðisins voru hvattir til þess að fara sparlega með vatnið. Vísir/Smári Fyrr í dag hafi langþráð rigningin látið sjá sig í skamma stund. „Það komu lengi þráðir dropar hérna áðan. Það rigndi í svona tvo tíma en stytti fljótlega upp. Þetta er búið, við fengum ekki mikla rigningu.“ Rekstraraðilar tjaldsvæðanna hafi ekki undirbúið sig sérstaklega fyrir mikla aðsókn eftir að veðurspá birtist en mikil vinna hafi verið lögð í uppbyggingu tjaldsvæðanna síðastliðin ár. Síðast þegar veðrið lék svona við Austurlandið hafi þau ekki verið eins undirbúin að taka á móti gestum. „Ætli það hafi ekki verið 2021. Þá vorum við lág á vatninu, það var alveg hrikalega mikil pressa en við vorum einfaldlega ekki undirbúin. En núna erum við búin að sem sagt bæta við risastórum tanki og gera þverari lögn hérna niður að tjaldstæði. Þannig á meðan að fjallið skilar okkur vatni þá erum við góð.“ „Þetta er pínu svona eins og í flugi þegar er kallað: „Er læknir um borð?“ Rafmagnið hafi slegið út vegna álags í gær í um það bil klukkutíma, „þegar allir kveiktu á hiturunum á sama tíma rétt fyrir miðnætti.“ Hún hafi þurft aðstoð við að koma rafmagninu á og hafi einfaldlega fundið „þennan fína rafvirkjameistara hérna á tjaldsvæðinu“ sem hafi kippt málunum í lag. Tjaldsvæðið í Fossárdal árið 2018. Facebook/Fossárdalur „Þetta er pínu svona eins og í flugi þegar er kallað: Er læknir um borð? Maður fer bara og kallar: Er rafvirki á svæðinu?“ Hún segir mannfjöldann náttúrulega mikið álag á starfsfólk en þau bruni á milli tjaldsvæða og haldi öllu gangandi. „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestum fjölgar,“ segir hún. „Við rekum hérna sex tjaldsvæði á Austfjörðum og það er meira og minna búið að vera pakkfullt á þeim öllum en það hefur gengið alveg gríðarlega vel, en það fá náttúrlega ekki allir rafmagn sem vilja.“
Múlaþing Tjaldsvæði Ferðalög Ferðaþjónusta Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira