Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2026 10:32 Pep Guardiola og Carlo Ancelotti sjást hér þegar þeir mættust sem stjórar Manchester City og Real Madrid. Getty/Clive Brunskill/ Ítalska knattspyrnusambandið hefur nú staðfest að það leitaði til Carlo Ancelotti um að gerast landsliðsþjálfari áður en viðræður hófust við Pep Guardiola.
Ítalska landsliðið hefur verið án aðalþjálfara síðan Gennaro Gattuso sagði starfi sínu lausu í apríl eftir að liðinu mistókst að komast á þriðja heimsmeistaramótið í röð. Fyrr í vikunni sagði Giovanni Malago, forseti ítalska knattspyrnusambandsins, að viðræður hefðu átt sér stað við Guardiola, sem yfirgaf Manchester City í sumar eftir tíu ár. Paolo Maldini, yfirmaður knattspyrnumála hjá FIGC, hefur líka viðurkennt að fyrst hafi verið leitað til Ancelotti, sem nú stýrir Brasilíu. „Við getum ekki falið þá staðreynd að við ræddum líka við Carlo áður en við töluðum við Pep. Okkur fannst hreinskilnislega rétt að byrja á þeim sem við töldum bestu í heimi,“ sagði Maldini á blaðamannafundi. 🚨 𝐁𝐑𝐄𝐀𝐊𝐈𝐍𝐆: Carlo Ancelotti has 𝐑𝐄𝐉𝐄𝐂𝐓𝐄𝐃 Italy's job offer, reports Ge Globo ❌🇮🇹Paolo Maldini confirmed today that Italy approached both Pep Guardiola and Carlo Ancelotti, but the latter has no interest in taking the job ✋Ancelotti informed the Italian… pic.twitter.com/gTB8cFvkX3— 433 (@433) July 23, 2026 Ancelotti, fyrrverandi liðsfélagi Maldini hjá bæði Ítalíu og AC Milan, tók við stjórn Brasilíu árið 2025 og framlengdi samning sinn í maí til heimsmeistaramótsins 2030. Þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr leik í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Noregi staðfesti brasilíska knattspyrnusambandið að hinn 67 ára gamli þjálfari myndi áfram stýra fimmföldum heimsmeisturunum. Maldini, fyrrverandi varnarmaður sem lék 126 landsleiki fyrir Ítalíu, sagði að sambandið myndi helst vilja ráða þjálfara fyrir lok vikunnar en forgangsatriðið væri að finna rétta manninn. Ítalski fréttamiðillinn La Gazzetta dello Sport greindi frá því að Guardiola væri að sækjast eftir tuttugu milljóna evra árslaunum (2,8 milljörðum króna), sem er tvöfalt hærri upphæð en Ítalía bauð. „Við getum satt best að segja ekki veitt neinar nýjar upplýsingar um hvað er að gerast í augnablikinu,“ bætti Maldini við þegar hann var spurður út í fréttina. Hinn 55 ára gamli Guardiola leiddi City til sex enskra úrvalsdeildartitla, þriggja bikarmeistaratitla, fimm deildabikartitla og Meistaradeildartitils á sigursælum áratug sínum á Englandi. Fyrrverandi landsliðsþjálfarar Ítalíu, Antonio Conte og Roberto Mancini, auk fyrrverandi miðjumanns landsliðsins, Andrea Pirlo, hafa einnig verið orðaðir við starfið.
Ítalski boltinn EM 2028 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira