Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. júlí 2026 09:32 Jurgen Klopp gerir fjögurra ára samning. Christian Kaspar-Bartke/Getty Images Jurgen Klopp var kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands á blaðamannafundi í morgun. Hann tekur við starfinu af Julian Nagelsmann og gerir samning sem gildir út heimsmeistaramótið 2030.
Klopp mun hefja störf þann 15. ágúst næstkomandi en fyrsti leikur hans við stjórnvölinn verður gegn Hollandi þann 24. september í Þjóðadeildinni. Honum til aðstoðar verða Peter Krawietz og Pepijn Lijnders, sem hafa unnið með Klopp lengi, ásamt Sven Bender, sem spilaði áður undir stjórn Klopp. Þýskaland féll úr leik á HM í sumar í 32-liða úrslitum gegn Paragvæ, þá lét Julian Nagelsmann af störfum og síðan þá hefur bara eitt nafn verið nefnt í umræðunni um næsta landsliðsþjálfara. Klopp hefur starfað sem erindreki Red Bull síðustu tvö ár, síðan hann hætti sem knattspyrnustjóri Liverpool í ensku úrvalsdeildinni árið 2024, en mun ekki halda áfram sem yfirmaður knattspyrnumála fyrir orkudrykkjaframleiðandann. Til að þakka Red Bull fyrir að sleppa Klopp án þess að þiggja greiðslu ákvað þýska sambandið að spila næstu þrjá leiki liðsins á leikvangi RB Leipzig. Á blaðamannafundinum í morgun sagði Klopp mikinn heiður að taka við þessu starfi og lýsti því sem hápunkti þjálfaraferilsins. Hann gaf það í skyn að ferillinn yrði ekkert lengri en þetta, það er að segja að hann myndi ekki taka við öðru starfi eftir að hafa þjálfað þýska landsliðið. Þá sagði Klopp einnig að hann væri ekki hrifinn af framkomunni sem forverar hans í starfi, Julian Nagelsmann og Tomas Tuchel, mættu. Klopp mun ekki sætta sig við neitt rugl. Christian Kaspar-Bartke/Getty Images „Þetta er mjög sérstakur dagur fyrir mig. Ég vil þakka öllum sem gerðu þetta mögulegt,“ sagði Klopp og vísaði þar einnig til Red Bull. „Ég hafði einhverja hugmynd um hversu stórt landsliðsþjálfarastarfið er en þegar maður er orðaður við það finnur maður enn frekar fyrir umfanginu og ábyrgðinni… Gagnrýnið mig ef eitthvað gengur ekki. Ég er viljugur til að vinna í því. Þetta snýst allt um starfið. Jürgen Klopp á sér engan feril eftir landsliðið. Þetta er hápunktur ferilsins… Þann dag sem þið viljið mig ekki lengur, þá segið þið það og ég er farinn. Án starfslokagreiðslu. Ef þið segið á morgun að ég sé ömurlegur, þá er ég farinn. Ekki bara ein manneskja, það þyrftu að vera fleiri. Ef þýska sambandið segir að ég sé ömurlegur, þá er ég farinn. Ef þið hagið ykkur illa og látið fjölskyldu mína ekki í friði, þá er ég farinn,“ sagði Klopp samkvæmt Bild.
Þýski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira