Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2026 13:00 Per Mertesacker verður íþróttastjóri þýska knattspyrnusambandsins og tekur við af Rudi Völler seinna á árinu. Getty Þýska knattspyrnusambandið kynnti um frekari breytingar á starfsmannamálum þess samhliða ráðningu Jürgens Klopp sem landsliðsþjálfara í dag. Per Mertesacker verður nýr íþróttastjóri sambandsins.
Goðsögnin Rudi Völler hefur verið íþróttastjóri þýska knattspyrnusambandsins frá árinu 2023 en mun hætta í haust. Fyrir það var sinnti hann keimlíkri stöðu hjá Bayer Leverkusen í tæpa tvo áratugi frá 2005 til 2022. Hinn 66 ára gamli Völler mun hætta síðar á þessu ári og Per Mertesacker, fyrrverandi leikmaður Arsenal og þýska landsliðsins, mun taka við. Mertesacker er 41 árs og hefur verið yfirmaður akademíu Arsenal frá árinu 2018, eftir að hafa sjö ár á undan verið leikmaður Englandsmeistaranna. Mertesacker mun því starfa samhliða Klopp sem var ráðinn þjálfari Þýskalands fram yfir HM 2030. Mertesacker vann sjálfur HM 2014 sem leikmaður en hann gerði garðinn frægan með Werder Bremen á blómaskeiði félagsins á fyrsta áratug þessarar aldar, áður en hann skipti til Arsenal. Kunnugleg andlit í þjálfarateyminu Klopp réði kunnugleg andlit til að starfa með sér í þjálfarateymi landsliðsins. Þeir Peter Krawietz og Pep Lijnders verða aðstoðarþjálfarar hans, en báðir sinntu því hjá Liverpool. Lijnders var aðstoðarþjálfari Pep Guardiola á síðustu leiktíð hans með Manchester City en hætti á sama tíma og Spánverjinn í vor. Pep Lijnders mun aðstoða Klopp enn á ný.Getty/Marc Atkins Krawietz hefur fylgt Klopp allan hans feril. Hann var yfirnjósnari hjá Mainz árin 2001 til 2008, sömu ár og Klopp var þjálfari liðsins. Hann fór með Klopp til Borussia Dortmund og starfaði samhliða honum í þjálfarateymi liðsins og í greiningarvinnu frá 2008 til 2015. Þá sinnti hann samskonar stöðu hjá Liverpool allan tíma Klopps þar, frá 2015 til 2024. Sven Bender er þá þriðji þjálfarinn í teymi Klopps. Hann er 37 ára gamall og hætti fótboltaiðkun árið 2021. Hann spilaði undir stjórn Klopp hjá Dortmund árin 2009 þar til Klopp hætti 2015.
Þýski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira