Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júlí 2026 08:59 Ekkja Boseman, Taylor Simone Ledward Boseman, ásamt leikurunum Letitia Wright og Michael B. Jordan voru viðstödd þegar leikarinn heitni Chadwick Boseman var heiðraður með stjörnu á Hollywood Walk of Fame. Getty Bræður bandaríska leikarans Chadwick Boseman, sem lést úr ristilkrabbameini árið 2020 einungis fjörutíu og þriggja ára að aldri, hafa stefnt ekkju hans, Taylor Simone Ledward-Boseman, vegna meðferðar hennar á margra milljóna dala dánarbúi hans. Þeir fara fram á að hún verði svipt yfirráðum yfir dánarbúinu en Boseman hafði ekki verið búinn að gera erfðaskrá þegar hann lést.
Þeir Derrick Boseman og Kevin Boseman, bræður leikarans, hafa lagt fram beiðni til dómstóls í Los Angeles um að þvinga ekkju Black Panther-stjörnunnar, Taylor Simone Ledward Boseman, til að úthluta peningum til fjölskyldumeðlima og að hún verði svipt yfirráðum yfir dánarbúi hans. Ekkjan gerð skiptastjóri Þegar Boseman lést árið 2020, fjórum árum eftir að hann greindist með ristilkrabbamein, átti hann eignir að verðmæti 3,8 milljóna dala, eða um 480 milljónir íslenskra króna, en lést án þess að hafa gert erfðaskrá. Þetta kemur fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Boseman steig hratt upp á stjörnuhimininn eftir að hann lék hlutverk T'Challa, konungs Wakanda, í Óskarsverðlaunamyndinni Black Panther.Getty Þar er einnig greint frá því að bræðurnir haldi því fram að ekkja Boseman hafi farið illa með úthlutun fjármunanna og að henni sé „ekki treystandi fyrir áframhaldandi umsjón með dánarbúinu“. Boseman er best minnst fyrir að leika aðalhlutverk T'Challa, konungs Wakanda, í Óskarsverðlaunamyndinni Black Panther frá Marvel sem sló í gegn árið 2018. Hann og Taylor Simone Ledward Boseman áttu engin börn saman og úrskurðaði dómstóll að fimmtíu prósent dánarbúsins ætti að renna til hennar en hún var einnig skipuð skiptastjóri dánarbúsins. Sömuleiðis áttu tuttugu og fimm prósent að renna til hvors foreldris Boseman. Bræður leikarans lögðu fram fyrrnefnda beiðni til dómstólsins í síðustu viku fyrir hönd foreldra sinna, Leroy og Carolyn Boseman. Í frétt BBC er greint frá því að í beiðninni hafi þeir sagt að ekkjan „hefði enn ekki skipt búinu“ og „haldi áfram að beita einhliða yfirráðum“ yfir því. Ledward, R&B-tónlistarkona sem notast við listamannanafnið Sahn, byrjaði með Boseman árið 2015 og þau giftu sig aðeins sex dögum fyrir andlát leikarans, í ágúst 2020. Hér fyrir neðan má sjá atriði úr kvikmyndinni Black Panther frá árinu 2018 þar sem konungurinn T´Challa kemur við sögu:
Bandaríkin Dómsmál Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira