Komst undan ásamt fjölskyldunni Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. júlí 2026 16:01 vísir/aðsend „Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Alls hefur ríflega 270 þúsund manns verið gert að rýma heimili sín í suðvesturhluta Evrópu en gróðureldar loga enn víða í Frakklandi og á Spáni. Langar bílaraðir mynduðust þegar þúsundir flúðu á brott úr úthverfum Bordeaux-borgar í suðvesturhluta Frakklands í nótt. Um 190 ferkílómetrar hafa orðið eldinum að bráð. Viðbragðsaðilar berjast við að hafa hemil á eldunum myrkranna á milli sem gengur seint. Fjöldahjálparstöðvum hefur verið komið fyrir víða í Bordeaux og nágrenni. Áskell Harðarson er einn þeirra sem hafa neyðst til að flýja gróðureldana í grennd við Bordeaux en hann er staddur þar ásamt eiginkonu sinni og sex ára syni í húsaskiptum. Þau hafi í fyrstu orðið lítið vör við náttúruhamfarirnar. Í gær hafi hins vegar orðið myrkt í borginni og reykur lagst yfir allt. „Við vöknum í morgun í húsinu sem við erum að gista í úthverfi Bordeaux. Þá er nágranni sem kemur og lætur okkur vita að þau séu að fara og að eldarnir séu að færast nær. Hann er að reyna að vara okkur við ef löggan skyldi koma og rýma svæðið. Við ákváðum að bíða ekki eftir því og drifum okkur út.“ Fjölskyldan hafi tekið saman föggur sínar í snatri og farið með lest í norðurátt en nú halda þau til í smábæ norðan við borgina. „Við vorum að kíkja út og það er kominn svona reykur aftur og orðið grátt yfir svo þetta virðist vera að dreifa sér. Maður sá það í lestinni á leiðinni hingað, það var allt grátt í sveitunum og eins og reykmökkur yfir öllu. Þetta er mjög sérstakt.“ Hann segir upplifunina ógnvænlega en tekur fram að hann hugsi mest til þeirra sem búa á svæðinu. „Fólk hérna er frekar rólegt og það eru allir hjálpsamir og náttúrulega búnir að vera í samskiptum við þau sem við erum í húsaskiptunum við og þau eru bara búin að bjóða til þess að hjálpa okkur með allt. Við erum ekki búin að vera óörugg en maður finnur náttúrulega fyrir smæð sinni fyrir náttúrunni. Það er fullt af fólki hérna sem er að missa heimili sín og er að flýja. Við erum bara túristar og höfum það gott, þannig að við getum lítið kvartað þótt að sumarfrísplönin okkar breytist aðeins.“ Hann segist hafa orðið var við töluvert mikla umferð bæði á akbrautum og á lestarstöðvunum. „Það er alveg mikil umferð burt úr borginni. Við tökum núna tvo daga hérna á einhverju hóteli og svo ætlum við bara að spila þetta eftir eyranu. Það er alveg vika þangað til við eigum flug heim, svo við höldum áfram ða vera í þessu ástandi.“
Veður Frakkland Gróðureldar Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira