Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Áróra L Davíðsdóttir skrifar 26. júlí 2026 22:43 Icelandair skilaði mettekjum. Vísir/Anton Nítíu og þrír, eða helmingur farþega vélar Icelandair urðu eftir á flugvelli í Alicante á Spáni í dag eftir að hún var rýmd vegna bilunar í neyðarútgangi vélarinnar. Flestir þurftu að fljúga heim í fleiri en einum fluglegg. Flogið var til Íslands með hinn helming farþega vélar Icelandair eftir einhverja seinkun en barnafjölskyldur voru settar í forgang.
Tugir Íslendinga, þar á meðal fjölskyldur með ung börn, voru skildir eftir á flugvellinum í Alicante á Spáni í nótt vegna bilunar sem kom upp í flugvél Icelandair. Allir farþegarnir voru komnir um borð í flugvélina þegar bilun á neyðarútgangi hennar varð til þess að hún var rýmd af farþegum og farangri og einungis helmingur farþega, eða 93 talsins, fékk að fara aftur um borð. Sjá einnig: Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Hinn helmingur farþeganna, aðrir 93, urðu eftir á flugvellinum í Alicante. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segist ekki geta staðfest hvort að allir strandaglóparnir séu komnir heim en áætlað hafi verið að koma öllum heim í dag. Reynt hafi verið að setja barnafjölskyldur í forgang en annars hafi verið handahófskennt hvaða farþegar flugu heim með vél Icelandair og hverjir urðu eftir. Sjá einnig: „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Bilaður neyðarútgangur hafa valdið því að vélin var rýmd. Ein neyðarrennibraut vélarinnar hafi virkjast að hluta til á flughlaði en þurfti að endurstilla hana og varð hún því óvirk. „Ákveðið var að það besta í stöðunni væri að fljúga með helming farþega,“ segri Guðni en gerð sé krafa um að ákveðið margir virkir útgangar séu á ákveðinn fjölda farþega. Bilunin hafi orðið með skömmum fyrirvara og því hafi Icelandair bent þeim sem eftir urðu að bóka hótelgistingu, taka kvittun og hafa samband við fyrirtækið varðandi endurgreiðslur. „Síðan fór okkar fólk að reyna að redda öllum heim,“ segir Guðni. Flestir þeirra 93 sem urðu eftir hafi flogið með öðrum flugfélögum en Icelandair, og flestir í fleiri en einum fluglegg. Fréttin hefur verið uppfærð. Áður stóð að neyðarrennibraut vélarinnar hafi virkjast á flugbraut en hið rétta er að hún virkjaðist á flughlaði.
Spánn Icelandair Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira