Mancini tekur aftur við ítalska landsliðinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2026 13:59 Roberto Mancini gerði Ítalíu að Evrópumeisturum fyrir fimm árum. epa/TELENEWS Forseti ítalska knattspyrnusambandsins hefur staðfest að Roberto Mancini verði næsti þjálfari ítalska landsliðsins. Þetta verður í annað sinn sem hann stýrir því.
Leitin að næsta landsliðsþjálfara Ítalíu hefur ekki gengið þrautalaust. Paolo Maldini var ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá ítalska sambandinu en hætti eftir aðeins rúmar tvær vikur í starfi. Eftir að Pep Guardiola og Carlo Ancelotti gáfu ítalska sambandinu afsvar vildi Maldini ráða Andrea Pirlo sem næsta landsliðsþjálfara. En Giovanni Malagó, forseti ítalska sambandsins, vildi ekki heyra á það minnst vegna tengsla Pirlos við rússneska veðmálafyrirtækið Fonbet. Maldini sagði í kjölfarið starfi sínu lausu líkt og Brasilíumaðurinn Leonardo sem hafði verið ráðinn sem ráðgjafi hans. Malagó hefur nú staðfest að Mancini taki við ítalska landsliðinu á nýjan leik. „Ég er að ræða við Mancini því hann er nýi þjálfarinn. Við bíðum eftir því að hann skrifi undir,“ sagði Malagó. Búist er við því að Claudio Ranieri taki við starfi Maldinis og verði Mancini til halds og trausts. Setti heimsmet en tókst ekki að koma Ítalíu á HM Mancini stýrði ítalska landsliðinu á árunum 2018-23 og gerði það að Evrópumeisturum 2021. Honum mistókst hins vegar að koma Ítalíu á HM 2022 og tók svo við landsliði Sádi-Arabíu í ágúst 2023. Undir stjórn Mancinis var ítalska liðið ósigrað í 37 leikjum sem var á þeim tíma heimsmet. Alls stýrði Mancini Ítalíu í 61 leik; 37 þeirra unnust, níu töpuðust og fimmtán enduðu með jafntefli. Mancini var síðast við stjórnvölinn hjá Al-Sadd í Sádi-Arabíu en hætti þar um miðjan júní.
Ítalski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira