Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2026 14:30 Gianluigi Donnarumma er einn af þessum markvörðum sem kunna það að búa til lítil taktísk leikhlé fyrir sín lið. Getty/Joe Prior Enska úrvalsdeildin mun taka upp nýjar reglur á nýju tímabili og sú sem vekur hvað mesta athygli er hversu hart verður tekið á markvörðum sem virðast þykjast vera meiddir til að trufla leikflæði eða gefa þjálfurum tíma til að koma skilaboðum til annarra leikmanna liðsins.
Enska knattspyrnusambandið sagði á mánudag að þessi aðgerð hefði verið samþykkt af alþjóðlegri reglubreytinganefnd knattspyrnunnar. „Enska knattspyrnan hefur fengið samþykki frá Alþjóðaknattspyrnuráðinu [IFAB] til að innleiða nýja tilraunareglu varðandi meiðsli markvarða fyrir tímabilið 2026–27 sem hluta af áframhaldandi skuldbindingu sinni til að viðhalda hraða og flæði í leikjum,“ sagði enska knattspyrnusambandið í yfirlýsingu. Global football’s law-making body has approved a trial of a measure intended to stamp out the tactic of goalkeepers allegedly feigning injury.English football will implement the trial immediately, which means from next month whenever the referee gives permission for a physio to… pic.twitter.com/FVCPdNHcbT— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) July 27, 2026 Ef leikur er stöðvaður vegna meiðsla markvarðar sagði enska knattspyrnusambandið að aðalþjálfarinn „verði að tilnefna útileikmann til að yfirgefa völlinn tafarlaust. Tilnefndi leikmaðurinn verður að vera utan vallar í að minnsta kosti eina mínútu eftir að leikur hefst að nýju.“ Í fréttum enskra fjölmiðla kom fram að ef þjálfarinn tilnefnir ekki leikmann innan tíu sekúndna frá því að dómarinn gefur til kynna að markvörðurinn geti fengið læknisaðstoð á vellinum verður fyrirliði liðs markvarðarins sjálfkrafa valinn sem sá leikmaður. Undantekningar eru árekstrar og blæðingar. Enska knattspyrnusambandið sagði að tilraunin „muni gilda með nokkrum undantekningum, þar á meðal þegar dæmd er aukaspyrna fyrir brot á markverði og hann þarf strax á meðferð að halda, markvörður og útileikmaður hafa lent í árekstri og þurfa aðhlynningu, eða ef það blæðir úr markverðinum.“ „Markmiðið er að tryggja að raunveruleg meiðsli fái áfram viðeigandi læknisaðstoð en um leið að fjarlægja hugsanlegt íþróttalegt forskot sem tengist leikstöðvunum,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu. BREAKING: English football has proposed a trial to tackle goalkeeper timeouts 🚨 pic.twitter.com/mcoop4wAAC— Sky Sports News (@SkySportsNews) July 27, 2026 Breska ríkisútvarpið sagði að fyrsti leikurinn þar sem tilraunareglan verður notuð verði leikur Tranmere og Rochdale í enska deildabikarnum á laugardag. Á síðasta tímabili var átta sekúndna reglan fyrir markverði innleidd, sem refsar markverði fyrir að halda boltanum í þann tíma með því að dæma hornspyrnu á andstæðinginn. Sú reglubreyting var talin vel heppnuð og samhliða henni á þessu tímabili munu dómarar nota fimm sekúndna niðurtalningu þar sem leikmenn hafa tafið innkast eða markspyrnu. Leikmenn munu einnig fá tíu sekúndur til að yfirgefa völlinn þegar þeim er skipt út af og mun þetta taka gildi frá og með byrjun Carabao-bikarsins þann 1. ágúst. English football has received approval from the International Football Association Board (IFAB) to introduce a new goalkeeper injury trial for the 2026-27 season.— The FA (@FA) July 27, 2026
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Sjá meira